Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Birgir Olgeirsson skrifar 2. september 2026 16:55 Gjaldskyldu á P1 og P2 svæðum í miðborginni á að ljúka klukkan 20 í stað 21 frá 1. október. Breytingin er sögð fyrsta skrefið í heildarendurskoðun bílastæðakerfis borgarinnar. Vilhelm Gjaldskyldutími á bílastæðum á P1 og P2 svæðum í Reykjavík verður styttur um eina klukkustund á kvöldin samkvæmt tillögu sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði í dag. Ráðið samþykkti jafnframt að bílahús borgarinnar verði opin allan sólarhringinn alla daga ársins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins lögðu fram tillögu um að gjaldskyldu á P1 og P2 svæðum ljúki klukkan 20 í stað klukkan 21 alla daga. Breytingin á að taka gildi 1. október og gilda út árið. Gjaldskylda verður því frá klukkan 9 til 20 á virkum dögum og frá klukkan 10 til 20 á laugardögum og sunnudögum. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar. Málinu var vísað til borgarráðs. Vilja auðvelda fólki að sækja miðborgina Meirihlutinn segir styttingu gjaldskyldutímans eiga að bæta aðgengi að miðborginni, styðja við mannlíf og auðvelda fólki að sækja verslanir, þjónustu og menningarviðburði á kvöldin. Í bókun meirihlutans kemur fram að óformlegt samráð hafi þegar farið fram við íbúa og hagaðila um bílastæðamál og aðgengi að miðborginni. Styttingin sé fyrsta skrefið í heildarendurskoðun gjaldskyldukerfis borgarinnar. Markmiðið sé að einfalda og samræma kerfið og laga það betur að þörfum íbúa, rekstraraðila og gesta miðborgarinnar. Formlegt samráð verði haft við íbúa og rekstraraðila, meðal annars með könnun á reynslu þeirra og viðhorfum til gjaldskyldu og bílastæðamála. Áhrif styttingarinnar verða síðan metin í tengslum við endurskoðunina. Bílahús opin allan sólarhringinn Á sama fundi samþykkti ráðið tillögu samgöngustjóra um að bílahús Bílastæðasjóðs Reykjavíkur verði opin allan sólarhringinn, alla daga ársins. Jafnframt verður eftirlit, öryggisgæsla og þjónusta færð frá starfsstöð Bílastæðasjóðs til sérstaks þjónustuaðila. Bílahús Reykjavíkurborgar verða opin allan sólarhringinn, alla daga ársins. Jafnframt verður eftirlit, öryggisgæsla og þjónusta færð til sérhæfðs þjónustuaðila.Vilhelm Meirihlutinn segir breytinguna næsta skref í að bæta aðgengi, þjónustu og öryggi í bílahúsunum. Með því að færa vöktun og öryggisgæslu til sérhæfðs þjónustuaðila sé stefnt að skýrari ábyrgð, styttri viðbragðstíma og áreiðanlegri þjónustu allan sólarhringinn. Undanfarin ár hefur þegar verið ráðist í breytingar á öryggisbúnaði bílahúsanna. Frá árinu 2019 hafa 1.705 LED-lampar verið settir upp, neyðarlýsing bætt og eftirlitsmyndavélum fjölgað auk þess sem eldri búnaður hefur verið endurnýjaður. Meirihlutinn leggur áherslu á að gerðar verði skýrar kröfur um þjónustustig og viðbragðstíma og að reynsla og öryggistilfinning þeirra sem nota bílahúsin verði metin reglulega. Gagnrýna breytinguna úr ólíkum áttum Samfylkingin gagnrýnir styttingu gjaldskyldutímans og telur að bíða hefði átt eftir heildarendurskoðun bílastæðamála og könnun meðal íbúa áður en ráðist væri í breytinguna. Í bókun flokksins segir að greining Bílastæðasjóðs bendi til þess að breytingin geti dregið úr nýtingu bílahúsa, aukið hættu á ólöglegum lagningum og gert íbúum miðborgarinnar erfiðara að finna stæði við heimili sín á kvöldin. Samfylkingin segir jafnframt að breytingin muni kosta borgina meira en 40 milljónir króna á þremur mánuðum vegna skiltabreytinga og tapaðra tekna. Flokkurinn telur nær að beina bílum í bílahús borgarinnar og nýta götustæði frekar í þágu íbúa og mannlífs. Miðflokkurinn telur breytinguna hins vegar ekki ganga nógu langt. Fulltrúi flokksins vill að gjaldskyldu á P1 og P2 svæðum ljúki aftur klukkan 18, eins og áður en gjaldskyldutíminn var lengdur til klukkan 21. Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins gagnrýnir einnig vinnubrögðin og telur að fyrst hefði átt að eiga formlegt samtal við íbúa og hagaðila um mögulegar breytingar án þess að niðurstaðan væri ákveðin fyrirfram. Samfylking styður breytingar á bílahúsunum Samfylkingin tekur hins vegar jákvætt í sólarhringsopnun bílahúsa borgarinnar og segir það samræmast þeirri stefnu að beina meiri bílaumferð í bílahús og nýta þau betur. Flokkurinn fagnar jafnframt endurbótum á lýsingu og myndavélakerfum en leggur áherslu á að við áframhaldandi breytingar verði tekið sérstaklega mið af öryggi og aðgengi þeirra hópa sem kunna að upplifa meira óöryggi í bílahúsum. Einnig þurfi að huga að þrifum, lýsingu, vöktun og mögulegri merkingu stæða fyrir ákveðna hópa.
Reykjavík Bílastæði Borgarstjórn Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi Sjá meira