Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Andri Broddason skrifar 2. september 2026 20:23 Guðjón Valur Sigurðsson vann sitt gamla félag í annarri umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Getty/Ronny Hartmann Fimm leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og átti nokkrir Íslendingar leik í kvöld. Rhein-Neckar Löwen er enn stigalaust, Gummersbach náði að koma til baka eftir tap gegn Magdeburg í fyrstu umferðinni og Flensburg situr á toppi deildarinnar.
Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach unnu Hauk Þrastarson og félaga í Rhein-Neckar Löwen 26-31. Haukur átti ekki góðan leik og hefur nú Rhein-Neckar Löwen tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni. Haukur Þrastarson skoraði aðeins eitt mark í fimm skotum en gaf þó átta stoðsendingar. Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach en það var eina skotið hans í leiknum. Rhein Neckar Löwen er ekki að eiga draumabyrjun í þýsku úrvalsdeildinni en vonandi mun gengi þeirra batna. Gummersbach náði að koma sér aftur á beinu brautina eftir að hafa tapað gegn ríkjandi meisturum í Magdeburg. Stórsigur Melsungen Melsungen einfaldlega slátraði Göppingen í leik kvöldsins sem endaði 31-18. Melsungen var aðeins með fjögurra marka forystu í hálfleik en liðið hrökk í næsta gír í seinni hálfleik. Snemma í fyrri hálfleiknum skoraði Melsungen fimm mörk í röð og kom forystu liðsins í níu mörk. Reynir Þór Stefánsson átti tvö af þessum mörkum en eftir þessa markaseríu sá Göppingen aldrei aftur til sólar. Reynir Þór skoraði samtals þrjú mörk í leiknum og komu þau öll í seinni hálfleik. Ýmir Örn Gíslason skoraði tvö mörk fyrir Göppingen sem þarf að sætta sig við stórt tap. Arnar Freyr á toppi deildarinnar Flensburg vann BHC í þýsku úrvalsdeildinni 34-29 þar sem Arnar Freyr Arnarsson spilaði fyrir Flensburg. Liðið er sem stendur á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar en nokkur lið eiga eftir að spila í annarri umferð deildarinnar.
Þýski handboltinn Íslendingar erlendis Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram Sjá meira