Innlent

Loka fyrir um­ferð vegna bilunar í um­ferðar­ljósum

Eiður Þór Árnason skrifar
Lokað er fyrir umferð frá Dalvegi inn á Nýbýlaveg.
Lokað er fyrir umferð frá Dalvegi inn á Nýbýlaveg. Vísir/Vilhelm

Búið er að loka fyrir umferð á Breiðholtsbrú til austurs og vesturs vegna bilunar í umferðarljósum. Einnig er lokað frá Reykjanesbraut upp á Breiðholtsbrú í norðurátt að miðbæ og af Breiðholtsbraut í suðurátt til Hafnarfjarðar. Einnig er lokað frá Dalvegi inn á Nýbýlaveg.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni og eru umferðarljós á gatnamótunum sögð óvirk. Unnið sé að viðgerð en ekki ljóst hversu langan tíma hún muni taka. Vegagerðin biður ökumenn um að sýna aðgát á svæðinu við þessar aðstæður. Áður hafði verið greint frá því að bilunin væri að valda umferðartöfum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út að búast megi við umferðartöfum vegna bilunarinnar. Ökumenn eru minntir á að fylgja umferðarmerkjum á staðnum.

Þá leggur lögreglan til að ökumenn íhugi að breyta ferðaáætlun sinni ef fyrirhugað er að aka um umrætt svæði nú síðdegis.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Óvirk umferðarljós valda töfum

Umferðarljós á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Nýbýlavegar, á og við brúnna yfir Reykjanesbraut, eru óvirk og óvíst hversu lengi viðgerð mun standa yfir. Sama gildir um umferðarljósin á gatnamótum Nýbýlavegar, Dalvegar og Skemmuvegar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×