Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. september 2026 12:05 Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum. Myndefni af banaslysi á Krýsuvíkurvegi þar sem þrjú ungmenni létust hefur farið eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum á milli ungmenna og barna. Verkefnastjóri hjá Barnaheillum segir um varhugaverða þróun að ræða sem þurfi að stöðva.
Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að rannsókn banaslyssins á Krýsuvíkurvegi miði ágætlega. Þrjú ungmenni létust í banaslysi aðfaranótt mánudags þegar bifreið hafnaði utan vegar eftir að hafa ekið á yfir 200 kílómetra hraða. Lögreglan stöðvaði ökumann sem ók á um 190 kílómetra hraða eftir Reykjanesbrautinni í nótt. Ekki sé búið að ræða við öll vitni banaslyssins en þau séu þó nokkur. Sævar staðfestir í samtali við fréttastofu að myndefni frá vettvangi þar sem bíllinn er alelda hafi verið í þó nokkurri dreifingu á milli barna og ungmenna á samfélagsmiðlum síðustu daga. Erfitt sé fyrir lögregluna að eiga við dreifinguna sem sé þó meðvituð um málið. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum, segir dreifinguna hafa neikvæð áhrif á sálarlíf ungmenna. „Því miður höfum við heyrt það að bara strax um nóttina sem slysið varð hafi myndbönd farið í dreifingu og mörg ungmenni hafi vaknað með þetta í símanum sínum. Þetta getur bara valdið miklu áfalli og þetta getur í rauninni fylgt þeim mjög lengi. Það er mjög sláandi að sjá svona og hvað þá þegar þetta er óumbeðið.“ Mikilvægt sé að foreldrar ræði við börnin sín. „Ég held að fræðsla sé alltaf langsterkasta vopnið okkar og bæði ætti fræðsla að fara fram í skólakerfinu en hún þarf líka að fara fram heima. Ef að foreldrar vita að barnið þeirra hefur fengið svona myndband sent, að fara þá svolítið inn í það að ræða til dæmis bara þú veist, hvað ef þetta væri einhver sem okkur þykir vænt um, ef þetta væri einhver í fjölskyldunni.“ Hún segir um varhugaverða þróun að ræða. Það færist í aukana með hverju árinu að ungmenni dreifi viðkvæmu myndefni sín á milli sem grafi undan samkennd þeirra. „Þau verða svona algjörlega ónæmari af því að það sem blasir við þeim á skjánum verður alltaf grófara og grófara og þau fjarlægja sig bara frá því. Smám saman teygist normið, sem sagt hvað þeim finnst hræðilegt og hvað þeim finnst ógeðslegt. Smám saman þá verða þau ónæm og líka kannski með því að gera greinarmun á því hvað er partur af einhverju gervi og hvað er raunverulegt.“ „Við þurfum að spýta í lófana þegar kemur að þessu af því að við viljum svo sannarlega ekki fara að missa samúð og samhygð úr samfélaginu okkar,“ segir Kolbrún sem tekur fram að skortur á samkennd á samfélagsmiðlum geti auðveldlega smitast út í samskipti í raunheimum. „Okkur sýnast öll merki vera í þá áttina, sem er auðvitað mjög dapurlegt.“
Þrír létust í banaslysi á Krýsuvíkurvegi Lögreglan Börn og uppeldi Samfélagsmiðlar Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Sjá meira