„Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Freyja Þórisdóttir skrifar 6. september 2026 16:32 Jóhannes Þór Skúlason segir muna mestu um að auka verðmæti sem fást af hverjum einasta ferðamanni. Þetta sé spurning um gæði fram yfir magn. Vísir/Ívar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir mikla tekjumöguleika í ferðaþjónusturekstri hérlendis en það séu aðrar leiðir en skattur sem séu vænlegri til árangurs. Það séu blessunarlega allir aðilar sem komi að málinu sammála um að það séu gæðin en ekki magnið sem skipti mestu. „
Þetta ár er að mörgu leyti í rauninni svipað og síðustu ár. Ferðaþjónustan hefur í rauninni ekkert vaxið núna frá 2017,“ sagði Jóhannes en hann var einn gesta í Sprengisandi á Bylgjunni. Hann sagði einnig að þrátt fyrir að sumir upplifi sem svo að hún hafi tekið stökk eftir faraldurinn þá séu sömu tölur að birtast núna í lok sumars og á sama tíma árið 2017. „Árið núna í samanburði við síðustu ár er sem betur fer að aukast að verðmætum. Það er eitthvað sem við viljum sjá,“ sagði hann sömuleiðis og að það væri ekkert eiginlegt hrun í gangi heldur væri sviðið „svona þokkalega stöðugt“. Flókið og margþætt verkefni Þá hafði hann á orði að það væri einhver smávægileg fækkun í fjölda þeirra ferðamanna sem hingað koma en það þýði að mikilvægi þess að auka verðmæti á hvern ferðamann ykist þá enn meira. Það sé flókið verkefni þar sem margir þættir þurfi að spila saman, bæði hjá fólki í greininni og hjá stjórnvöldum. „En það er sameiginlegt markmið allra. “ Í heildina litið sé sumarið að koma frekar vel út, það hefði þó mátt sinna markaðssetningu betur og styðja betur við vörumerkjasetningu Íslands frá 2022, sem sé sem betur fer að taka jákvæðum stakkaskiptum núna. Verra sé að árstíðasveiflan hafi aukist. „Það er eitthvað sem við viljum ekki sjá því við viljum hafa þetta svona eins jafnt og við getum yfir árið til þess að halda fólki í heilsársstörfum, til að fyrirtækin um allt land geti haldið starfsemi allt árið og þannig stutt við byggðarlögin,“ sagði Jóhannes. Okkur hafi tekist mjög vel að lengja hinn svokallaða háannatíma hér áður fyrr og í upphafi þegar ferðaþjónustan hafi farið að vaxa höfum við verið með mestu árstíðasveiflu á Norðurlöndum og núna fyrir tveimur árum síðan verið komin upp í það að vera með minnstu árstíðasveiflu á Norðurlöndum. Ekki farið of geyst í að byggja ný hótel Jóhannes útskýrir að það sé mjög mismunandi eftir landshlutum hversu mikil sveiflan sé en að það sé til að mynda mun meiri árstíðasveifla enn þá á Norður-, Austur- og Vesturlandi og Vestfjörðum. „Þannig að það getur verið mjög flókið og við megum ekki við því að missa þetta niður,“ sagði hann. Aðspurður hvort slök hótelnýting væri tilkomin vegna þess að Íslendingar hafi farið of geyst í hótelbyggingar segist hann ekki telja að svo sé. „Ef við tökum til dæmis bara Austurland sem dæmi, sem er mjög skýrt dæmi um þetta í Múlaþingi og á Héraði, þá erum við með hótel þar sem eru alls ekki ofbyggð eða hafa orðið fyrir mikilli fjárfestingu. Það hefur orðið mjög flott uppbygging þar og fjárfesting, en á sumrin vantar hótelrými á þessu svæði og á veturna er það of mikið,“ sagði hann. Viðtalið úr Sprengisandi má hlusta á í spilaranum hér fyrir neðan. Líkt og hann hafi áður minnst á sé mikilvægi þess að fá sem mest úr hverjum ferðamanni að aukast statt og stöðugt. Það sé okkar gæfa hér á landi í þessari atvinnugrein að það sé í raun og veru enginn ágreiningur um þetta markmið. Vermætaaukning en ekki magnaukning „Stjórnvöld og atvinnugreinin sjálf, fólk í ferðaþjónustu, eru sammála um að þetta sé leiðin. Ferðamálastefnan sem við unnum saman og var samþykkt á þinginu 2019 kveður mjög skýrt á um þetta,“ sagði hann og ítrekaði „það eru gæðin en ekki magnið sem við viljum, það er verðmætaaukningin en ekki magnaukning.“ Þau í greininni kappkosti að „setja svolítið jákvætt ljós á þessi samskipti okkar og stjórnvalda“, vegna þess að út á við geti virst sem það andi köldu þar á milli. „Okkur hefur gengið vel að tala við stjórnvöld, en það er ennþá þessi hugsun um að aukin skattlagning skili skynsamlegum tekjum í ríkissjóð. Og þá er alltaf verið að horfa á bara næsta fjárlagaár, það þarf að loka einhverju gati, það þarf að skila hallalausum fjárlögum og þá þarf að hækka skatta hér og hækka skatta þar til þess að ná inn þessum tekjum,“ sagði hann. Það sé til dæmis mjög mikill ágóði af því að hver ferðamaður gisti einni nótt lengur á landinu. „Ef okkur tekst frá nóvember fram í maí, sem sagt utan háannarinnar yfir veturinn, að sjá til þess að nýtingin verði 10 prósent meiri, hvort sem er með aðeins fleiri ferðamönnum eða fólk gisti hérna lengur, þá erum við að tala um að það geti skilað um átta milljörðum í skatttekjur til ríkis og sveitarfélaga,“ sagði Jóhann og ítrekaði: „Það er svona sem við stækkum þessa köku.“
Ferðalög Skattar, tollar og gjöld Verðlag Hótel á Íslandi Ferðaþjónusta Samtal við stjórnmálin um framtíð ferðaþjónustunnar Tengdar fréttir Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir jákvætt að unnið sé að því að vinna upp samkeppnishæfni sem hafi tapast undanfarin ár. Aftur á móti séu ýmis atriði sem séu óásættanleg og núverandi ríkisstjórn haldi uppi mýtum um greinina frekar en staðreyndum. Sem dæmi sé því haldið fram að hún sé best geymd á lágframleiðni- og láglaunaskalanum þegar hún sé í raun meðallaunagrein í hagkerfinu. 19. júlí 2026 15:10 Mest lesið Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Atvinnulíf Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Neytendur Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Viðskipti innlent Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Atvinnulíf Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Atvinnulíf Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Verulegur samdráttur hjá Isavia Viðskipti innlent Fleiri valkostir í Bónus með Salling Samstarf Mikill munur á afkomu almannatengla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Sjá meira
Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir jákvætt að unnið sé að því að vinna upp samkeppnishæfni sem hafi tapast undanfarin ár. Aftur á móti séu ýmis atriði sem séu óásættanleg og núverandi ríkisstjórn haldi uppi mýtum um greinina frekar en staðreyndum. Sem dæmi sé því haldið fram að hún sé best geymd á lágframleiðni- og láglaunaskalanum þegar hún sé í raun meðallaunagrein í hagkerfinu. 19. júlí 2026 15:10