Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Valur Páll Eiríksson skrifar 6. september 2026 22:20 Fabio Grosso var aðeins í þrjá mánuði hjá Fiorentina og tókst aðeins að stýra liðinu í þremur deildarleikjum, sem töpuðust allir. EPA/CLAUDIO GIOVANNINI Fabio Grosso hefur verið sagt upp sem knattspyrnustjóra Fiorentina á Ítalíu eftir slaka byrjun á tímabilinu. Hann entist aðeins þrjá mánuði og þrjá deildarleiki í starfi.
Grosso tók við Flórens í sumar af Paolo Vanoli sem hafði verið þjálfari liðsins frá því í nóvember í fyrra. Samningur Vanoli rann út í sumar og ákveðið að framlengja hann ekki til þess að ráða Grosso í hans stað. Vanoli var ráðinn í stað Stefano Pioli sem entist aðeins í fimm mánuði í starfi og Raffaele Palladino var þjálfari liðsins í tólf mánuði þar á undan. ACF Fiorentina comunica che Fabio Grosso è stato sollevato, in data odierna, dall’incarico di allenatore della Prima Squadra maschile. pic.twitter.com/EKIpk5r8yt— ACF Fiorentina (@acffiorentina) September 6, 2026 Hringekjan heldur áfram þar sem Grosso var í kvöld rekinn eftir þriðja tap Fiorentina í jafnmörgum leikjum í upphafi tímabils. Liðið tapaði 2-1 fyrir Torino á heimavelli í gær en hafði á undan því tapað 4-0 fyrir Roma og 3-0 fyrir Frosinone. Stjórnendur Fiorentina gáfust strax upp á Grosso eftir aðeins þrjá mánuði og þrjá deildarleiki við stjórnvölin er Fiorentina er á botni deildarinnar, stigalaust með markatöluna 1-9. Motta líklegastur til að taka við Grosso hefur áður stýrt Bari, Verona, Brescia og Frosinone á Ítalíu auk Sion í Sviss og Lyon í Frakklandi. Honum gekk þá vel með Sassuolo á Ítalíu áður en hann yfirgaf liðið í sumar til að taka við Fiorentina. Fjölmiðlar á Ítalíu greina frá því að líklegast sé að Thiago Motta taki við starfinu af Grosso í Flórens. Hann hefur verið án starfs frá því að hann var rekinn frá Juventus í mars 2025. Áður var hann þjálfari Genoa, Spezia og Bologna. Nýbúinn að lána Albert Fiorentina missti nýverið íslenska landsliðsmanninn Albert Guðmundsson til Lazio á láni. Albert kom ekki við sögu í tapinu fyrir Roma en spilaði 70 mínútur í tapinu fyrir Frosinone og var á meðal betri leikmanna í slöku Fiorentina-liði í þeim leik. Hann fór til Lazio á lokadegi félagsskiptagluggans, þar sem Fiorentina hafði fengið framherjann Beto frá Everton, Svíann Alieu Njie frá Torino og einnig argentínska ungstirnið Federico Mastantuono á láni frá Real Madrid. Albert gæti þreytt frumraun sína fyrir Lazio er liðið sækir Udinese heim. Vinni Lazio leikinn jafnar það Roma og Inter með fullt hús á toppi deildarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Ítalski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Sjá meira