Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Magnús Jochum Pálsson skrifar 7. september 2026 10:25 Igho Ubiribo fór í afdrifaríka typpastækkun í Taílandi. Bresk-nígeríski viðskiptajöfurinn Igho „Tiny“ Ubiribo lést eftir að farið í typpastækkunaraðgerð í Taílandi en hann var þar í fríi með eiginkonu sinni í mars. Upphaflega var talið að Ubiribo hefði dáið úr hjartaáfalli en nú hefur dánardómstjóri úrskurðað að typpastækkunin hafi dregið hann til dauða.
Dægurmálamiðillinn TMZ greinir frá andláti hins 43 ára Ubiribo og byggir fréttina á upplýsingum úr réttarrannsókn á málinu í Lundúnum. Ubiribo var í fríi í Taílandi með eiginkonu sinni, Danielle Simba Allen, og dvöldu þau á Marriott-hótelinu í Bangkok þegar hann fór í typpastækkunaraðgerð á ónefndri taílenskri klíník. Þar hafi fjörutíu millilítrum af fylliefninu hýalúronsýru og staðdeyfilyfinu lídókaíni verið sprautað inn í lim Ubiribo. Igho og Danielle á góðri stundu. Eftir aðgerðina hafi hjónin farið í nudd þar sem hann kvartaði yfir brjóstverk og missti í tvígang meðvitund. Ubiribo var í kjölfarið fluttur með sjúkrabíl á Sukhumvit-spítala og gat fyrst um sinn svarað spurningum lækna. Áður en hægt var að taka sneiðmynd af honum missti Ubiribo hins vegar meðvitund. Læknar mátu að hann hefði orðið fyrir lungnareki en það er þegar það myndast stífla í lungnaslagæðum sem stafar af massa sem borist hefur með blóðstraumi, oftast blóðsega. Ubiribo var þá fluttur á gjörgæsludeild þar sem læknar framkvæmdu endurlífgunartilraunir í hundrað mínútur áður en hann lést að morgni 6. mars. Við krufningu á líki Uburibo fannst efni í lungum hans sem passaði við hýalúronsýruna sem var notuð í sprautunni. Dánardómstjórinn Jean Harkin mat það svo að Igho hefði dáið úr lungnareki sem orsakaðist af aðgerðinni. Igho átti um 185 þúsund fylgjendur á Instagram og var þekktur fyrir íburðarmikinnn lífstíl sinn. Hann átti glæsivillu í Crenshaw-hverfi í Los Angeles og rándýra íbúð í Lundúnum. Igho giftist fatahönnuðinum Danielle í stóru brúðkaupi í Zimbabwe árið 2022. Ubiribo var borinn til grafar í Lundúnum í gullkistu sem er sögð hafa kostað meira en 745 þúsund Bandaríkjadali.
Lýtalækningar Taíland Bretland Nígería Andlát Tengdar fréttir „Fötlun fyrir marga að vera með lítið typpi“ Lýtalæknir sem sérhæfir sig í kynfærauppbyggingu framkvæmir eina til tvær typpastækkanir á mánuði. Litlum eða gröfnum typpum geta fylgt vandamál tengd hreinlæti, þvagláti og kynlífi. Margir upplifi lítið typpi sem fötlun. 9. október 2025 10:27 Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira
„Fötlun fyrir marga að vera með lítið typpi“ Lýtalæknir sem sérhæfir sig í kynfærauppbyggingu framkvæmir eina til tvær typpastækkanir á mánuði. Litlum eða gröfnum typpum geta fylgt vandamál tengd hreinlæti, þvagláti og kynlífi. Margir upplifi lítið typpi sem fötlun. 9. október 2025 10:27