Viðskipti innlent

Saka Símann um undir­boð með áskriftarpakka

Kjartan Kjartansson skrifar
Samkeppniseftirlitið telur Símann hafa stundað undirboð með tilboði á net- og sjónvarpsþjónustu á árunum 2019 til 2021.
Samkeppniseftirlitið telur Símann hafa stundað undirboð með tilboði á net- og sjónvarpsþjónustu á árunum 2019 til 2021. Vísir/Vilhelm

Samkeppniseftirlitið hefur tilkynnt móðurfélagi Símans að það telji fyrirtæki hafa brotið samkeppnislög með skaðlegri undirverðlagningu á áskriftum að fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu. Félagið segist ætla að taka til fullra varna í málinu.

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins beinist að áskriftarleið að net- og sjónvarpsþjónustu sem Síminn markaðssetur sem „Heimilispakkann“. Ásar hf., móðurfélag Símans, segist hafa fengið svonefnt andmælaskjal frá Samkeppniseftirlitinu vegna rannsóknarinnar.

Frummat eftirlitsins sé að tímabundið tilboð á Heimilispakkanum hafi falið í sér skaðlega undirverðlagningu sem hafi brotið gegn samkeppnislögum.

Í tilkynningu Ása til Kauphallarinnar segir að málið tengist tilboðum á árunum 2019 til 2021. Landsréttur hafi þegar fellt úr gildi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem vísað sé til í andmælaskjalinu.

„Félagið mun eðli málsins samkvæmt nýta andmælarétt sinn og taka til fullra varna í málinu. Upplýst verður um framgang málsins eftir því sem tilefni er til, lögum samkvæmt,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×