Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Aron Guðmundsson skrifar 13. september 2026 10:30 Það var nóg um að vera í ensku úrvalsdeildinni í gær. Öll mörkin má sjá í þessari frétt Vísir/Getty Leikir gærdagsins í enska boltanum buðu upp á mikla skemmtun og fjölmörg mörk. Chelsea missteig sig á heimavelli og sömuleiðis Liverpool á meðan Englandsmeistarar Arsenal stóðust krefjandi áskorun gegn Sunderland. Átján mörk voru skoruð í leikjunum sjö í gær og var nóg um dramatík.
Á Stamford Bridge reyndust nýliðar Hull heimamönnum í Chelsea þrándur í götu og neituðu að gefast upp. Svo fór að leikar þar enduðu 2-2. Hull hefur farið frábærlega af stað í ensku úrvalsdeildinni og vermir nú þriðja sæti deildarinnar með einu stigi meira en Chelsea í fjórða sæti. Klippa: Chelsea - Hull City | 2-2 Kvöldleikurinn var á milli Sunderland og Arsenal þar sem Englandsmeistararnir stóðust stóra áskorun og fóru af hólmi með 2-0 sigur. Vítaspyrna var dæmd og varin í leiknum og mönnum var heitt í hamsi. Arsenal er búið að vinna alla leiki sína í deildinni til þessa. Klippa: Sunderland - Arsenal | 0-2 Mark undir lok leiks frá Igor Thiago tryggði Nottingham Forest mikilvægan útisigur gegn Aston Villa og heldur dræmt gengi heimamanna undir stjórn Unai Emery á tímabilinu í deildinni áfram. Klippa: Aston Villa - Nottingham Forest | 1-2 Einnig var boðið upp á dramatík á Selhurst Park þar sem mark á lokamínútum leiksins frá Zian Flemming tryggði nýliðum Ipswich Town sigur í fimm marka leik gegn Crystal Palace. Klippa: Crystal Palace - Ipswich Town | 2-3 Fjögur mörk voru svo skoruð á Vitality-leikvanginum þar sem AFC Bournemouth og Brentford gerðu 2-2 jafntefli í skemmtilegum leik. Kevin Schade fór á kostum og skoraði bæði mörk Brentford í leiknum. Klippa: Bournemouth - Brentford | 2-2 Tottenham virðist bara ekki geta skorað mörk. Liðið gerði markalaust jafntefli gegn Everton á heimavelli í gær og hefur, í sínum fjórum leikjum til þessa í deildinni, enn ekki tekist að koma boltanum í netið og er á fallsvæði ensku úrvalsdeildarinnar. Klippa: Tottenham - Everton Þá reyndist gamall leikmaður Liverpool, Alvaro Arbeloa knattspyrnustjóri Fulham, þeim erfiður í gær. Liverpool tókst ekki að finna sigurmarkið í leik liðanna og endaði hann með markalausu jafntefli. Liverpool hefur gert þrjú jafntefli í fyrstu fjórum leikjum sínum til þessa í deildinni og situr í 6. sæti. Klippa: Liverpool - Fulham
Enski boltinn Chelsea FC Hull City AFC Sunderland AFC Arsenal FC Nottingham Forest Aston Villa FC Crystal Palace FC Ipswich Town FC Brentford FC AFC Bournemouth Tottenham Hotspur Everton FC Liverpool FC Fulham FC Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Er katastrófa að vinna ekki í dag? Fótbolti Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Mun skilja sál mína eftir í búrinu“ Sport Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira