Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Árni Sæberg skrifar 14. september 2026 13:05 Ungi maðurinn sem banaði Bryndísi Klöru við dómsuppkvaðningu í fyrra. Vísir/Anton Brink Ungi maðurinn sem varð Bryndísi Klöru Birgisdóttur að bana aplánaði innan við einn þriðja af fangelsisrefsingu sinni í lokuðu úrræði á vegum barnaverndaryfirvalda. Skilyrði þess að afplána refsingu á Vernd er að hafa afplánað minnst einn þriðja refsingar í fangelsi. Fangelsismálastofnun túlkar reglur þess efnis sem svo að miða skuli við þann tíma sem fangi hefði fengið reynslulausn, ekki heildarfangelsisrefsingu.
Líkt og Vísir greindi frá í morgun hóf banamaður Bryndísar Klöru afplánun á áfangaheimilinu Vernd í byrjun september. Hann var dæmdur í átta ára fangelsi í apríl í fyrra en hafði setið í gæsluvarðhaldi frá 24. ágúst árið 2024. Hann hefur því afplánað í tvö ár og 21 dag. Samkvæmt upplýsingum á vef Fangelsismálastofnunar ber fanga að hafa afplánað að minnsta kosti þriðjung refsingar sinnar í fangelsi. Þriðjungur átta ára er tvö ár og átta mánuðir. Því er ljóst að maðurinn uppfyllir ekki skilyrðin samkvæmt orðanna hljóðan. Miða við stigskipta afplánun Böðvar Einarsson, staðgengill forstjóra Fangelsismálastofnunar, segir aftur á móti í samtali við Vísi að Fangelsismálastofnun túlki regluna sem svo að fangi þurfi að afplána einn þriðja af þeirri refsingu sem hann myndi alla jafna afplána áður en hann fengi reynslulausn. Fangar sem eru tuttugu og eins árs eða yngri sótt um reynslulausn eftir að hafa afplánað þriðjung refsitímans, eða tvö ár og átta mánuði í tilfelli mannsins. Böðvar segir að ástæðan fyrir þessari nálgun Fangelsismálastofnunar sé að almennt miði stofnunin við svokallaða stigskipta afplánun. Getur fengið reynslulausn eftir sjö mánuði Hún felur það í sér að fangi afpláni fyrst í fangelsi, eða lokuðu úrræði á vegum barnaverndaryfirvalda eins og í tilfelli mannsins sem hér um ræðir, svo eftir atvikum í opnu fangelsi, utan fangelsis eða með rafrænu eftirliti, áður en hann fær loks reynslulausn. Þannig hefði í tilfelli unga mannsins ekki getað komið til afplánunar utan fangelsis ef ekki væri litið til þess tíma sem hann hefði raunverulega þurft að afplána í fangelsi frekar en heildarfangelsisdómsins, við beitingu reglu um afplánun þriðjungs í fangelsi áður en afplánun á Vernd getur hafist. Hann mun sem áður segir geta sótt um reynslulausn eftir að hafa afplánað 2 ár og átta mánuði, sem verður eftir rúmlega sjö mánuði.
Fangelsismál Stunguárás við Skúlagötu Ofbeldi gegn börnum Ofbeldi barna Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Sjá meira