Flugvirkjar fara í verkfall Bjarki Sigurðsson skrifar 14. september 2026 14:35 Aðgerðirnar ná til félagsmanna Flugvirkjafélagsins sem starfa hjá Icelandair. Vísir/Vilhelm Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) hefur tilkynnt Icelandair að flugvirkjar félagsins sem starfa hjá fyrirtækinu muni hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair til Kauphallar. Atkvæðagreiðsla félagsmanna hófst á föstudag og lauk á hádegi í dag. Skömmu eftir að tilkynning Icelandair barst til Kauphallar birti FVFÍ stutta færslu um atkvæðagreiðsluna á vef sínum. Þar segir að kjörsókn hafi verið 92 prósent og að 88,3 prósent þeirra sem greiddu atkvæði hafi samþykkt vinnustöðvunina. „Flugvirkjar starfandi hjá Icelandair hafa staðið í kjaradeilu við fyrirtækið undanfarna mánuði. Kjarasamningar urðu lausir um síðustu áramót en viðræður aðila hófust í nóvember 2025. Þann 13. febrúar vísaðu Samtök atvinnulífsins, sem fara með samningsumboð fyrir hönd Icelandair, deilunni til ríkissáttasemjara. Þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara hefur lítið miðað í deilunni. Eftir fund hjá ríkissáttasemjara þann 22. júní slitnaði upp úr viðræðum milli aðila,“ segir í tilkynningunni frá FVFÍ. Í september eru áætlunarflug Icelandair um 110 talsins á dag og fjöldi farþega um fimmtán þúsund. Ljóst er að verkfallið hefur áhrif á fjölda fólks. Í tilkynningu Icelandair segir að náist ekki að semja við flugvirkjana áður en verkfallsaðgerðir hefjast muni flugáætlun þeirra verða fyrir miklum áhrifum. Á þessu stigi sé ekki hægt að segja til um hve mikil áhrif boðað verkfall muni hafa á fjárhag félagsins. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði fyrir helgi að afleiðingar verkfallsins yrðu afar slæmar. Hann varaði við því að áhrif verkfallsins myndu ná langt út fyrir starfsemi félagsins, hafa áhrif á þúsundir farþega og íslenska ferðaþjónustu og hagkerfið í heild. Flugvirkjar hafi þegar fengið launahækkanir og að vinnumarkaðsmódelið hér á landi gangi ekki til lengdar. Flugvirkjar svöruðu með því að lýsa vonbrigðum með framgöngu og yfirlýsingar Boga. Flugvirkjar yrðu að fá að greiða atkvæði í friði. „Flugvirkjar eru ekki að kjósa um það hvort Ísland verði opið eða lokað. Flugvirkjar loka ekki landinu. Verkfall myndi hafa veruleg áhrif á starfsemi Icelandair, en Icelandair er ekki eina flugfélagið sem flýgur til og frá Íslandi. Áhrifin geta verið mikil án þess að ein starfsstétt hafi þar með í höndum sér að „loka landinu“,“ segir í yfirlýsingu Óskars Einarssonar, formanns FVFÍ, á vefsíðu félagsins í dag. Fréttin var uppfærð kl. 14:44 með tilkynningu FVFÍ.
Kjaramál Icelandair Flug Vinnumarkaður Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Viðskipti innlent Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Viðskipti innlent Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Viðskipti innlent Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Viðskipti innlent Novo hættir að vera Nordisk Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Sjá meira