Innlent

Eldur í Elliða­ár­dal

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Áróra L Davíðsdóttir skrifa
Eldur kviknaði í Toppstöðinni.
Eldur kviknaði í Toppstöðinni. Vísir/Anton Brink

Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdal í Reykjavík á sjöunda tímanum í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna eldsins.

Varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins staðfestir þetta í samtali við Vísi. Töluverður reykur er á svæðinu og þykkur reykjarmökkur liggur yfir Elliðaárdal og nágrenni.

Slökkvistarf er enn í fullum gangi og eldurinn hefur ekki verið slökktur.

Ertu á svæðinu? Áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is


Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×