Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2026 11:37 Robert Wagner og John Bunting myrtu menn sem þeir töldu vera barnaníðinga eða homma og fengu tvo yngri menn til að aðstoða sig. Öðrum yngri manninum var sleppt árið 2024 og er nú verið að sleppa hinum, stjúpsyni Buntings. Getty Einum af fjórum mönnum sem myrtu að minnsta kosti ellefu menn yfir sjö ára tímabili í Suður-Ástralíu verður sleppt úr fangelsi. Málið er eitt alræmdasta sakamál Ástralíu en lík flestra fórnarlamba mannanna fundust í sýrutunnum í Snowtown í suðurhluta Ástralíu árið 1999. Önnur fundust grafin í jörðu.
Nú á að sleppa yngsta morðingjanum, sem aðstoðaði yfirvöld á sínum tíma, eftir að yfirvöldum mistókst að koma í veg fyrir að hann fengi reynslulausn. James Spyridon Vlassakis, var átján ára þegar hann framdi sitt fyrsta morð árið 1998. Þá tók hann þátt í að myrða hálfbróður sinn, að áeggjan John Bunting, stjúpföður síns. Hann tók síðar einnig þátt í að myrða þrjá menn til viðbótar, samkvæmt frétt Ríkisútvarps Ástralíu, en líkamsleifar allra fjögurra fundust í Snowtown. John Bunting fyrir utan dómsal í desember 2020.Getty/Bryan Charlton, Fairfax Media Vlassakis játaði á sínum tíma að hafa framið morðin og bar vitni fyrir hönd saksóknara gegn hinum morðingjunum tveimur. Hann var að endingu dæmdur í að minnsta kosti 26 ára fangelsi. Þeim tíma lauk í ágúst í fyrra en Vlassakis hefur nú varið rúmum 27 árum í fangelsi. Bunting var dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Annar maður sem var dæmdur heitir Robert Wagner og hann var einnig dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Þeir tveir höfðu tengingar við hópa nýnasista í Ástralíu en hópurinn myrti menn sem Bunting taldi vera barnaníðinga eða homma. Í einhverjum tilfellum fékk hann hópinn til að myrða menn sem honum var illa við af því þeir voru feitir eða fíkniefnaneytendur. Fjórði maðurinn í hópnum heitir Mark Haydon en hann játaði að hafa komið að því að hjálpa við að fela tvö lík. Honum var sleppt úr fangelsi árið 2024, eftir að hafa setið inni í 25 ár. Hér að neðan má sjá sjónvarpsfrétt ABC News um Vlassakis. Sýndi fyrirmyndarhegðun Vlassakis fékk reynslulausn í desember í fyrra en yfirvöldum tókst að koma í veg fyrir að honum yrði sleppt úr fangelsi. Þrír dómarar í sérstökum áfrýjunardómstól staðfestu í morgun nýjan úrskurð nýrrar reynslulausnarnefndar um að sleppa Vlassakis úr fangelsi. Meðal annars byggði sá úrskurður á því að Bunting hefði átt stóran þátt í því að Vlassakis hafi framið morðin. Hann hafi haft mikið vald yfir Vlassakis og að það vald sé ekki lengur til staðar. Þá segir í nýjasta úrskurði reynslulausnarnefndar Suður-Ástralíu, að Vlassakis hafi verið fyrirmyndarfangi og lítið brotið af sér. Það gerðist þrisvar sinnum að fíkniefni greindust í þvagsýnum hans en hann hafi aldrei sýnt af sér ofbeldisfulla hegðun. Árið 2012 var gefin út kvikmynd um Snowtown morðin. Stiklu hennar má sjá hér að neðan.
Ástralía Erlend sakamál Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira