FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Sindri Sverrisson skrifar 18. september 2026 07:29 Unnur Thorarensen Skúladóttir, sem einnig hefur stimplað sig inn í Bestu deildina í sumar, skoraði tvö mörk þegar 2. flokkur FH tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á miðvikudaginn. vísir/Diego FH varð í fyrrakvöld Íslandsmeistari í 2. flokki kvenna í fótbolta. Stelpurnar fengu hins vegar engan bikar í hendurnar. Mistök sem verða leiðrétt í dag, segir framkvæmdastjóri KSÍ.
FH-stelpur tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með stæl í Kópavogi á miðvikudagskvöld þegar þær unnu stórsigur gegn Breiðabliki, 12-3, þar sem Eva Marín Sæþórsdóttir skoraði sex mörk. Þær söfnuðu 33 stigum í 14 leikjum í sumar, skoruðu alls 109 mörk og eru verðskuldaðir meistarar. Þegar kom að því að fagna titlinum var hins vegar enginn bikar á staðnum. Knattspyrnusambandi Íslands hafði láðst að sjá til þess þrátt fyrir að ljóst væri að FH myndi með sigri, í þessum síðasta leik sínum á tímabilinu, verða meistari. Þetta gerist í sömu viku og atvinnu- og landsliðskonan þrautreynda Dagný Brynjarsdóttir sagði í viðtali við Vísi að Ísland hefði staðið í stað, eða tekið skref aftur á bak, varðandi umgjörð kvennaliða í fótbolta síðustu ár. „Myndi þetta gerast hjá strákum?“ Friðþjófur Helgi Karlsson, faðir stelpu í liði FH, vakti athygli á málinu á Facebook og skrifaði meðal annars: „Sú stund að heyra lokaflautið gella og fá að lyfta bikarnum saman úti á velli er uppskeran eftir ómælda vinnu og fórnir. En sú stund var tekin af stelpunum okkar í gær. Þrátt fyrir að KSÍ hafi vitað nákvæmlega hvað var undir mætti enginn fulltrúi frá sambandinu á svæðið. Enginn bikar, engir verðlaunapeningar, engin umgjörð. Maður hlýtur óneitanlega að velta því fyrir sér hvað veldur svona mistökum. Getur verið að þetta sé á einhvern hátt tengt virðingu fyrir kvennaknattspyrnunni? Myndi þetta gerast hjá strákum? Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ – þetta er ykkur til skammar!“ Friðþjófur merkti Eystein, framkvæmdastjóra KSÍ, í færslunni og var Eysteinn fljótur til svars. Hann kvaðst ekki ætla að útskýra hvað nákvæmlega hefði orsakað mistökin en sagði ljóst að starfsfólk væri leitt yfir þeim. Báðust strax afsökunar og afhenda bikarinn í dag Eysteinn tók jafnframt fram að til stæði að leiðrétta mistökin í dag og fá tækifæri til að biðjast afsökunar í persónu. „Hér voru klárlega gerð mistök í öllu atinu sem fylgir úrslitaleikjunum í öllum flokkum og starfsfólki hér innandyra líður ekki vel yfir því. Ætla ekki að fara nánar út í það hér hvað gerðist en fyrst að þú taggaðir mig inní þennan póst get ég fullvissað þig um að innan við klst frá því leikurinn kláraðist og mistökin voru orðin ljós var komin afsökunarbeiðni á formann Knd FH sem og á þjálfara 2. flokks kvenna sem átti einnig að skila því til Íslandsmeistaranna. Við munum leiðrétta þessi mistök strax á morgun og fáum þá tækifæri til að biðjast afsökunar í eigin persónu Mistökin hafa verið gerð og því miður verður þeim ekki breytt, en við getum lært af þessu og það verður gert,“ skrifaði Eysteinn.
FH KSÍ Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira