Atvinnulíf

Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðs­lega fokking erfitt og það má vera það“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Ólafur Kári Júlíusson, vinnusálfræðingur og eigandi Vinnuvís ráðgjafaþjónustu, segir langtímaatvinnuleysi í raun vera endalaust höfnunarferli. Miklu skipti að vera ekki í neinum Pollyönnuleik þegar málin eru rædd, þetta sé bara ógeðslega erfið staða fyrir fólk að vera í.
Ólafur Kári Júlíusson, vinnusálfræðingur og eigandi Vinnuvís ráðgjafaþjónustu, segir langtímaatvinnuleysi í raun vera endalaust höfnunarferli. Miklu skipti að vera ekki í neinum Pollyönnuleik þegar málin eru rædd, þetta sé bara ógeðslega erfið staða fyrir fólk að vera í. Vísir/Anton Brink

„Við lifum oft eftir væntingum sem enginn annar er að gera til okkar. Þetta sjáum við sérstaklega sterkt hjá karlmönnum. Það er kynjamunur í upplifun á atvinnuleysi og karlar eiga erfiðara með þetta andlega. Þeir eru með þessa innbyggðu hugmynd: „Ég vil vera til staðar, ég verð að skaffa“. En oft er makinn ekkert að gera þá kröfu,“ segir Ólafur Kári Júlíusson vinnusálfræðingur og eigandi ráðgjafaþjónustunnar Vinnuvís.

Umræðuefnið er: Langtímaatvinnuleysi.

„Eftir ákveðinn tíma í atvinnuleysi verður þetta vítahringur. Þar sem þú ert fastur í stanslausu maraþoni af umsóknum. Sækir um hér og þar upp á von og óvissu um hvort þú fáir svar eða viðtal,“ segir Ólafur.

„Oft segi ég við fólk á námskeiðum hjá mér: Við ættum ekkert endilega að tala um þennan tíma sem ráðningarferli heldur frekar höfnunarferli. Því í marga mánuði ertu að sækja um og upplifa höfnun. Aftur og aftur,“ segir Ólafur og bætir við:

„Þér þarf ekkert að líða vel með þetta og þú þarft ekkert að setja upp hérna rosalega flottan front.“

Í Atvinnulífinu í dag og á morgun fjöllum við um langtímaatvinnuleysi.

Ekkert blabla: Þetta er fokking erfitt

Ólafur hefur starfað við mannauðsmál og vinnusálfræði um árabil. Reglulega heldur hann til dæmis námskeið fyrir fólk hjá Vinnumálastofnun fyrir fólk sem hefur verið atvinnulaust í tólf mánuði eða lengur.

Því þótt atvinnuleysi sé almennt erfitt fyrir flesta að fara í gegnum er langtímaatvinnuleysi jafnvel enn erfiðari staða að upplifa.

Ekkert blabla... þýðir hreinskilið samtal um stöðuna, hvort sem okkur líkar hún betur eða verr.

„Þú ert mögulega ekki að fá starfið þótt þú sért mjög hæfur. Einfaldlega vegna þess að það voru margir aðrir hæfir að sækja um. Vandinn er hins vegar sá að þessar skýringar fylgja oftast ekki þegar þú upplifir höfnunina. Það er enginn sem talar við þig og segir: Þú ert alveg með það sem þarf í þetta starf. Það var bara annar hæfur sem var ráðinn.“

Ólafur gefur okkur mörg góð ráð í dag fyrir þá sem ýmist eru í þeirri stöðu að hafa verið atvinnulausir lengi. Eða maka þeirra, vini og vandamenn.

„Hjálpum fólki að vera jákvætt, en sleppum þessum Pollýönnuleik: „Þetta fer allt vel á endanum.“ Það er bara ekki það sem við erum að hugsa í því augnabliki. 

Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það. Þess vegna er stundum bara gott þegar einhver sest hjá þér og segir:„Já, ég veit þetta hlýtur að vera ótrúlega erfitt og taka á.““

Ólafur segist oft hugsa um Sísýfoss.

„Þú setur alla orkuna í að ýta steininum upp bratta fjallshlíðina, og svo þegar þú ert alveg að ná toppnum missirðu hann frá þér og þarft að byrja upp á nýtt. Þetta er endalaus eltingaleikur.“

Ólafur Kári segir okkur oft fókusa mikið á tekjutapið sem fylgir atvinnuleysi. Mannlegu þættirnir vegi samt þungt líka. Með atvinnumissi missum við félagslegu og faglegu tengslin og oft spyrji fólk sig þá: Hver er ég ef ég get ekki verið ég?Vísir/Anton Brink

Hver er ég ef ég er ekki ég?

Ólafur segir atvinnuleysi ekki aðeins þýða tekjutap. Mannlegu þættirnir vegi þungt:

Sjálfsmyndin brotnar. Þú ert ekki lengur með daglegan tilgang, stöðu og samfélag í kringum þig eins og gildir þegar þú ert í vinnu.

„Þetta hefur bara veruleg áhrif á lífsánægju fólks – án djóks. Í sumum tilfellum tekur það bara tvö til fjögur ár að ná lífinu til baka, jafnvel eftir að fólk fær vinnu aftur.“

Ólafur segir okkur almennt mjög föst í hlutverkum. Þegar fólk kynnist nýju fólki er algengt að spurt sé um nafn fyrst og síðan: Hvað gerir þú?

„Við erum oft svo föst í hlutverkunum: „Ég er stjórnandi“, „ég er kennari“, „ég er flugfreyja“. Vinnumarkaðurinn í dag krefst meiri sveigjanleika. Við getum ekki hallað okkur eins mikið að menntuninni eða gamla titlinum og áður,“ segir Ólafur og vísar þar til breyttra tíma.

„Eitt sinn var vinnumarkaðurinn meira þannig að ef þú menntaðir þig sem kennari gastu einfaldlega starfað sem kennari í 40 ár. Þetta á í raun ekki við á þeim vinnumarkaði sem er í dag,“ segir Ólafur og því vakni oft spurningin hjá fólki í atvinnuleysi sem er einfaldlega:

„Hver er ég ef ég er ekki ég?“

Ólafur nefnir dæmi:

Ef þú fengir tækifæri til að svífa yfir erfidrykkjuna þína inn í framtíðina – heldurðu að starfstitillinn þinn sé það sem fólk mun í alvörunni segja um þig?“

Ólafur mælir því alltaf með því að fólk nýti þennan tíma sem atvinnuleysið skapar til að velta fyrir sér: Hver er ég fyrir utan vinnu?

„Eitt af því sem er gott að gera í langtímaatvinnuleysi er einmitt þessi sjálfskoðun. Að velta fyrir sér gildunum okkar. Hver við erum, hvað okkur langar til að vera eða gera. Hverjir eru styrkleikarnir okkar og svo framvegis.“

Á námskeiðum fyrir fólk sem hefur lengi verið atvinnulaust, mælir Ólafur Kári oft með því að fólk hætti að vera svona upptekið af atvinnuleitinni. Það sé ekkert endilega leiðin sem skili hraðari árangri. Fólk eigi ekki að spyrja atvinnulausa endalaust: Hvernig gengur að finna nýja vinnu? Frekar að spyrja: Hvernig líður þér?Vísir/Anton Brink

Fleiri góð ráð

Ólafur segir erfiðasta aðilann í langtímaatvinnuleysi oft vera okkur sjálf.

Oft séum við að setja á okkur kröfur eða dæma, sem aðrir eru ekki að gera.

„Okkur hættir til að fókusera á tekjumissinn en gleymum svo oft að ræða allt hitt sem fylgir þessu. Því þegar þú ert atvinnulaus ertu búinn að missa einn þriðja af sjálfsmyndinni; þessi félagslegu og faglegu tengsl sem fylgdu vinnunni.“

Að vera atvinnulaus í langan tíma er ömurleg staða að vera í. Hvaða ráð getur þú gefið okkur?

„Við megum gangast við stöðunni. Þetta er sárt. Þetta er vont. Að upplifa vonleysi er alveg eðlileg tilfinning og skömm getur fylgt þessu. Þetta er ekkert annað en taugakerfið að bregðast við hættulegum aðstæðum. Það er ekki það að þú sért vandamálið,“ segir Ólafur og bætir við:

„Þetta hljómar öfugsnúið, en: Ekki týna þér á kafi í atvinnuleit. Ertu í alvörunni að áorka einhverju með því að skoða auglýsingar margoft á dag? Ákveddu frekar þriðjudaga og fimmtudaga milli 10 og 11. Sestu niður, sæktu um, og settu þetta svo frá þér.“

Almenn virkni skiptir miklu máli.

„Búðu þér til rútínu, vaknaðu á sama tíma, ræktaðu sambönd, gerðu sjálfboðastörf eða farðu á námskeið. Námskeiðið snýst oft ekki um fagið sjálft heldur að komast út úr húsi og spegla sig í öðru fólki.“

Ólafur hvetur fólk til að fá aðstoð við að gera góð kynningarbréf og ferilskrár.

„En greindu færnina þína, ekki bara starfið eða titilinn. Hvað kanntu í raun og veru? Hvaða grunnfærni úr gamla starfinu nýtist á allt öðrum vettvangi?“

Ólafur Kári segir snemmtæk inngrip skipta máli, ekki eigi að bíða í tólf mánuði eftir inngripum því lífsánægja minnki mikið í langtímaatvinnuleysi og fólk sé oft í nokkur ár að ná sér, þótt það fái nýja vinnu. Gott sé fyrir atvinnulausa að týna sér ekki á meðan það fer í gegnum þennan tíma.Vísir/Anton Brink

En hvað með makann, vini og vandamenn sem vilja styðja? Og þó þær fjárhagsáhyggjur sem oft hvíla á heimilinu þegar atvinnuleysi er.

Ekki láta öll samtöl snúast um: „Jæja, hvernig gengur að finna vinnu? Hvað sóttirðu um mörg störf í dag?“ 

Við þurfum ek.ki alltaf að minna fólk á erfiðleikana – við gerum okkur alveg helvíti góða grein fyrir þeim sjálf“

Miklu frekar eigum við að spyrja um líðan fólks.

„Í staðinn er miklu betra að setjast niður og segja hreint út: „Þetta er bara ógeðslega erfitt. Ég skil að þetta taki á. Hvernig líður þér í dag og hvað get ég gert fyrir þig?“

Ólafur segir líka miklu skipta að kerfið sem haldi utan um fólk sem er atvinnulaust sé mannlegt. Snemmbær inngrip hjálpi mikið.

„Við sjáum hvað þetta hefur mikil áhrif á lífsánægju fólks til langs tíma. Þess vegna verðum við að grípa snemma inn í – ekki bíða í tólf mánuði. Fólk sem fær markvissa ráðgjöf og aðstoð strax í byrjun ferilsins er tvisvar til þrisvar sinnum líklegra til að komast fyrr í starf aftur.“

Loks minnir Ólafur á að lífið er hér og nú – ekki bara þegar starfið kemur.

„Í atvinnuleysi á markmiðið ekki að vera að losna með töfrabrögðum við vanlíðunina. Heldur að læra að svamla í þessum öldusjó. Þetta snýst um skaðaminnkun. Að spyrja sig á hverjum morgni: Þetta er staðan í dag, svona líður mér í dag – hvað er eitt lítið skref sem ég get tekið í dag fyrir mína eigin heilsu og líðan? Því þetta snýst ekki bara um að finna vinnu, heldur að týna ekki sjálfum sér á meðan verið er að leita að vinnu.“


Tengdar fréttir

Ekkert blabla: Ís­lenska vinnu­markaðsmódelið deyjandi

„Gigghagkerfið er að vaxa hægar á Íslandi en á Norðurlöndunum og í Evrópu, sem að mínu mati skýrist meðal annars af því að hér er þríhliða vinnumarkaðsmódelið enn svo sterkt,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnunarráðgjafi og eigandi Dokkunnar.

Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“

„Ef starfsemi VIRK, sem hófst 2009, er undanskilin þá erum við með yfir 40 ára gamalt kerfi sem hefur ekki náð að þróast í takt við breytta tíma og því gott að taka samtalið,“ segir Valgeir Sigurðsson, einn stofnenda Vinnuverndar.

Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn?

Þegar tíðar fréttir eru um uppsagnir er auðvelt að finna til. Því hver uppsagnarfrétt er meira en okkur aðeins til upplýsinga. Þetta eru líka fréttir um vinnustaði sem við vitum þá um leið að eru að upplifa sorg, sjokk og allt þar á milli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×