Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Árni Sæberg skrifar 22. september 2026 16:08 Varnargarðar héldu hrauni að mestu utan bæjarins. Vísir/Vilhelm Niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík benda til þess að forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík séu ásættanlegar að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar. Ríkisstjórnin mun hefja vinnu við að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands segir að ríkisstjórnin hafi í dag fjallað um niðurstöður þess hluta endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík sem nú liggur fyrir. Kynna niðurstöður á íbúafundi í kvöld Í apríl síðastliðnum hafi það verið mat ríkisstjórnarinnar að ekki væru að svo stöddu forsendur til að hefja skólahald að nýju í Grindavík eða stuðla að aukinni búsetu barna í bænum. Þá hafi ekki legið fyrir skýrt skilgreind viðmið um ásættanlega áhættu sem gætu stutt slíkar ákvarðanir. Síðan þá hafi verið unnið að endurskoðun áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavík. Vinnan hafi meðal annars beinst að öryggi við daglega dvöl í bænum og við hugsanlega rýmingu, samfelldu skólahaldi, velferð barna og öryggi húsnæðis. Fjöldi sérfræðinga, hagaðila og Grindvíkinga hafi tekið þátt í vinnunni. Vinnu varðandi þessa afmörkuðu þætti áhættumatsins sé nú lokið og niðurstöður verði kynntar á íbúafundi í Grindavík í kvöld. Vinnu við heildstætt áhættumat fyrir Grindavík verði haldið áfram og það verði endurskoðað reglulega eftir því sem aðstæður, þekking og reynsla þróast. Íbúafundurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Vísi í kvöld. Áhættan sú sama og í öðrum bæjum sem búa við náttúruvá Þá segir að niðurstöður vinnunnar bendi til þess að unnt sé að halda áhættu fyrir fólk sem dvelur eða starfar í Grindavík innan sambærilegra marka og í öðrum byggðarlögum sem búa við langvarandi náttúruvá, að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og öryggisráðstafanir virkar. Aðstæður í Grindavík séu þó áfram sérstakar þar sem ógnin sé viðvarandi allan sólarhringinn og allt árið þar til goslokum hefur verið líst yfir. Ríkisstjórnin teljji því að forsendur fyrra mats hennar frá 10. apríl síðastliðnum hafi breyst. Niðurstöðurnar feli þó ekki í sér að óvissu vegna náttúruvár sé lokið. Áfram þurfi að fylgjast náið með þróun mála og tryggja að öryggisráðstafanir, svo sem vöktun, viðvörunakerfi og rýmingaráætlanir, séu ávallt virkar. Við ákvarðanir um búsetu og skólahald þurfi jafnframt að leggja sérstaka áherslu á hagsmuni og velferð barna. „Niðurstöðurnar skapa þó grundvöll fyrir Grindavíkurbæ, ríkið og aðra hlutaðeigandi aðila til að taka næstu skref við endurreisn Grindavíkur, meðal annars með því að hefja markvisst og í áföngum undirbúning að því að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum, kjósi þeir það.“
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Fleiri fréttir Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Sjá meira