Sport

Ís­lendingar gætu fengið fjórar milljónir á næsta Evrópu­móti

Andri Broddason skrifar
Hilmar Örn Jónsson mun fá tvö þúsund evrur ef hann nær sama árangri á næsta EM í frjálsum íþróttum og hann náði í ár.
Hilmar Örn Jónsson mun fá tvö þúsund evrur ef hann nær sama árangri á næsta EM í frjálsum íþróttum og hann náði í ár. Patrick Smith/Getty Images

Áætlað er að á næsta Evrópumeistaramóti í frjálsum íþróttum muni verðlaunafé hækka töluvert. Allir keppendur sem munu enda í átta hæstu sætum í sinni grein munu fá verðlaunafé en áður fyrr fengu einungis tíu keppendur úr tíu greinum verðlaunafé.

Næsta Evrópumót verður haldið í Silesia í Póllandi og munu þeir keppendur sem fá gullverðlaun fá 30 þúsund evrur eða fjórar milljónir króna að launum. Verðlaunafé mun svo lækka stigmagnandi niður í áttunda sæti sem verður síðasta sætið í fimmtíu greinum sem fær verðlaunafé.

Breytingarnar verða til þess að keppendur geta reiknað með hvað þeir fái mikið í verðlaun annað en það sem var vaninn. Á Evrópumótinu í sumar voru fimm karlar og fimm konur valin til að fá verðlaun í aðeins tíu greinum eftir árangri. Því var mjög óskýrt hver myndi fá verðlaun og hversu mikið.

Ísland átti átta keppendur á EM í frjálsum íþróttum nú í sumar og hefur Ísland ekki átt jafn marga keppendur í efstu tólf sætunum á EM í 28 ár. Þrátt fyrir það hefði aðeins einn Íslendingur fengið peningaverðlaun fyrir árangur sinn ef fjárhagsreglur fyrir næsta EM væru í gildi í ár. Það væri Hilmar Örn Jónsson sem hefði fengið 2 þúsund evrur eða tæpar 280 þúsund krónur fyrir að lenda í sjöunda sæti í sleggjukasti karla.

Mikill uppgangur hefur verið í árangri Íslendinga á stórmótum í frjálsum og er stefnan hjá frjálsíþróttasambandinu sett á verðlaunasæti árið 2028 í Póllandi. Ef það næst mun árangurinn skila sér vel í kassann hjá þeim leikmönnum sem ná því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×