Sport

Dag­skráin í dag: Blikar spila mikil­vægan Evrópuleik

Andri Broddason skrifar
Breiðablik spilar mikilvægan leik gegn pólska liðinu Czarni í undankeppni Evrópubikars kvenna.
Breiðablik spilar mikilvægan leik gegn pólska liðinu Czarni í undankeppni Evrópubikars kvenna. Guðmundur/Vísir

Það er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir Breiðablik á dagskrá í dag þar sem liðið tekur á móti Czarni Sosnowiec frá Póllandi.

Breiðablik er í mikilli baráttu um toppsæti Bestu deildar kvenna þar sem liðið er í efsta sæti enn með jafnmörg stig og FH í öðru sæti deildarinnar. Breiðablik er með betri markatölu en það munar aðeins þremur mörkum og því þarf lítið út af bregða til að missa af efsta sætinu.

Leikurinn gegn pólska liðinu er í annari umferð í undankeppni fyrir Evrópubikar kvenna. 16 lið keppa í þessari umferð og eru tveir leikir spilaðir í hverri viðureign. Þeir sem vinna svo viðureignina komast áfram í aðalkeppni Evrópubikarsins.

Leikur Breiðabliks og Czarni er sýndur á Sýn Sport Ísland og byrjar útsending klukkan 15:50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×