Atvinnulíf

Rigning, rok, gular við­varanir – og við ætlum að keyra á 110%

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Þessi vikulok ætlum við að helga góðu ráðunum veðrinu. Eða réttara sagt orkunni okkar. Því það er eðlilegt að okkur líði öðruvísi í rigningu og roki miðað við sólríkan dag í maí. 
Þessi vikulok ætlum við að helga góðu ráðunum veðrinu. Eða réttara sagt orkunni okkar. Því það er eðlilegt að okkur líði öðruvísi í rigningu og roki miðað við sólríkan dag í maí.  Vísir/Vilhelm

Gular viðvaranir, lárétt rigning og morgnar sem líkjast helst miðnætti. Haustið á Íslandi bankar sjaldan kurteislega á dyrnar; það sparkar þeim upp.

Að ganga inn í haustið getur vissulega verið notalegt ef ekki væri fyrir fyrirsagnirnar: Rigning, rigning, rigning eða Gular viðvaranir. 

Fyrirsagnir sem minna á að skammdegið og kaldur vetur eru fram undan. Leiðindin hafin, stutt í rúðusköfuna, útigalla krakkanna og jafnvel nýja vetrarskó.

Vinnustaðir keyra líka oft á fullt á haustin. Nú skal sko gefa í, keyra á 110% og ná áætlun – jafnvel ríflega það.

Vandinn er bara sá að veðrið hefur raunveruleg áhrif á okkur. Að ætlast til þess að afköst okkar séu nákvæmlega þau sömu og í sólríkum maí er ekki endilega raunhæft viðhorf. Það að vakna eldhress á morgnana, halda sömu einbeitingu, afgreiða jafn mörg tölvupóstskeyti eða brosa í gegnum blautan ullartrefilinn er ekki sjálfgefið.

Skýringin er einföld: 

Við erum líffræðilegar verur, ekki ótengdar náttúrunni.

Hvað segja vísindin?

Það er ekki leti sem gerir sængina þyngri á haustin heldur lífeðlisfræði. Svefn- og dægursveiflurannsóknir sýna að skortur á náttúrulegri morgunbirtu seinkar framleiðslu á kortisóli (vakningarhormóni líkamans) og heldur melatóníni (svefnhormóninu) lengur virku í líkamanum. Heilinn er bókstaflega enn í hvíldarham þegar við mætum á fyrsta fund dagsins.

Þegar við mætum þessari náttúrulegu orkulækkun með sjálfsásökun – „af hverju er ég svona orkulaus núna?“ – búum við til aukna streitu. 

Kristin Neff, prófessor við Háskólann í Texas og einn helsti sérfræðingur heims í sjálfsmildi (self-compassion), hefur sýnt fram á að fólk sem mætir eigin takmörkunum af mildi og skilningi sýnir meiri þrautseigju, hefur meira vinnuþol til lengri tíma og er í verulega minni hættu á kulnun en þeir sem keyra sig miskunnarlaust áfram.

Sjálfsmildi er ekki afsökun fyrir því að gefast upp; hún er stefnumótandi orkustjórnun.

Þessi vikulok helgum við góðu ráðunum veðrinu og því að vinna með haustinu og skammdeginu framundan. 

1. Skiptu tímastjórnun út fyrir orkustjórnun

Átta vinnustundir eru ekki allar eins. Í stað þess að ætla að vera jafn virk allan daginn skaltu kortleggja hvenær orkutoppurinn þinn er í skammdeginu. Settu krefjandi verkefni og mikilvægar ákvarðanir á þann tíma, en geymdu rútínuvinnu og tölvupósta fyrir lægðirnar.

2. Hjálpaðu heilanum á morgnana

Þar sem sólin sér ekki um að vekja okkur þurfum við að hjálpa til. Kveiktu á skærum ljósum heima, fáðu þér prótínríkan morgunverð og forðastu að hefja daginn á því að liggja í myrkrinu í símanum. Ljósalampi við skrifborðið fyrstu tvo tímana getur skipt sköpum fyrir árvekni. Allt eru þetta atriði sem gefa heilanum skýr skilaboð: Nú er dagur og tími til að virkja orkuna.

3. Stutt hleðsluhlé

Ef orkan dettur niður eftir hádegi dugar sjaldnast fjórði kaffibollinn eða enn einn orkudrykkurinn. Taktu fimm mínútna hvíld þar sem þú stendur upp, teygir úr þér eða gengur einn hring um vinnustaðinn. Að leyfa heilanum að núllstilla sig léttir á heilaþokunni margfalt hraðar.

4. Við eigum ekki að vera fullkomin

Það er í góðu lagi að afköstin sveiflist með árstíðum. Að viðurkenna að rigningardagur að hausti eða dimmur nóvember krefst meiri orku en júní gerir okkur kleift að forgangsraða af raunsæi og velja verkefnin sem raunverulega skipta máli – í stað þess að reyna að gera allt á 110%.

Að lokum: 

Þegar veðrið grenjar úti og dagurinn virðist vart ætla að lýsa, sýndu þér og samstarfsfólkinu þolinmæði. 

Það er engin skömm í því að vera manneskja í íslensku hausti.


Tengdar fréttir

Þegar allt er að fara fjandans til…

Fólk var orðið langþreytt á stöðugu gargi um viðræður af eða á við ESB: Já eða Nei. Þegar gengið var að kjörborðinu 29. ágúst önduðu margir léttar, einfaldlega dauðfegnir að þeirri hringiðu væri lokið.

„Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“

„Það er ekki beint eins og veðrið sé alltaf að hjálpa okkur. Því stundum hefur fólk verið að lenda á Íslandi í stormi og varla litist á blikuna, jafnvel þannig að flugvél geti ekki lent eða fluginu sé aflýst,“ segir Kathryn Gunnarsson, Global Talent & People Experience hjá Alvotech, og hlær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×