Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Kjartan Kjartansson skrifar 24. september 2026 08:48 Nooshi Dadgostar, leiðtogi Vinstriflokksins. Jafnaðarmannaflokkur Magdalenu Andersson þarf á Vinstriflokknum að halda ef honum á að takast að mynda vinstristjórn. Vísir/EPA Formaður Vinstriflokksins í Svíþjóð telur að rannsókn á kosningasvindli sem gagnaðist nýkjörnum þingmanni flokksins hafi ekki áhrif á stjórnarmyndunarviðræður. Þetta er í fyrsta skipti sem formaðurinn tjáir sig um rannsóknina.
Sænska lögreglan rannsakar ásakanir um að fólki hafi verið borgað fyrir að greiða lítt þekktum frambjóðanda Vinstriflokksins atkvæði í persónukjöri í þingkosningunum sem fóru fram fyrir tæpum þremur vikum. Frambjóðandinn segist ekki hafa neitt með málið að gera og að lögregla hafi ekki haft samband við hann. Engu að síður hefur verið ákveðið að hann fari í leyfi og taki ekki sæti á nýju þingi á meðan rannsókn stendur yfir. Nooshi Dadgostar, leiðtogi Vinstriflokksins, tjáði sig í fyrsta skipti um rannsóknina í viðtali við Aftonbladet. Þar segir hún ásakanirnar grafalvarlegar en telur þær ekki eiga að hafa áhrif á stjórnarmyndunarviðræður Vinstriflokksins og Jafnaðarmannaflokksins. „Ég sé ekki að þetta hafi slík áhrif. Þetta snerist um fá atkvæði,“ segir hún við blaðið. Sagðir hafa beint spjótum sínum að heimilislausum og fíklum Spurð að því hvort að það hefði komið henni á óvart að Mohamed Abdukardir Ali hefði náð kjöri í gegnum persónukjör þegar flokksfélagar hans í Borlänge lýstu honum sjálfir sem óþekktum sagði Dadgostar að Ali nyti greinilega mikil trausts þar. „Sú staðreynd að oddvitinn hafi ekki unnið með honum sýnir einfaldlega að hann hefur ekki verið hluti af borgarstjórnarflokki eða gegnt trúnaðarstörfum. Þannig er það bara en við erum með kerfi sem gerir það mögulega að ná kjöri með persónukjöri,“ segir Dadgostar. Aftonbladet hefur einnig eftir heimildarmönnum að hópur manna hafi beint atkvæðaveiðum sínum að jaðarsettum hópi fólks af sómölskum uppruna, meðal annars heimilislausum og fíklum. Þeir hafi beitt fólkið verulegum þrýstingi að greiða ákveðnum frambjóðanda atkvæði og í sumum tilfellum greitt allt tvö hundruð sænskar krónur, jafnvirði tæpra 2.500 íslenskra króna, eða gefið fólkinu að borða í skiptum fyrir atkvæði þess. Þrír menn eru grunaðir um að standa að kosningasvindlinu.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Erlend sakamál Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira