Sport

Haaland mætir ekki í við­tal eftir tíðindi dagsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Erling Haaland skoraði tvívegis gegn Dönum í gærkvöldi.
Erling Haaland skoraði tvívegis gegn Dönum í gærkvöldi. Vísir/Ulrik Pedersen/NurPhoto via Getty Images

Norska landsliðið hefur breytt fyrirkomulagi blaðamannafundar með Erling Haaland eftir að greint var frá því í dag að Manchester City yrði gerð sekt um 114 brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.

Haaland átti upphaflega að mæta fjölmiðlum á morgun fyrir Þjóðadeildarleik Noregs gegn Portúgal. Norska knattspyrnusambandið tilkynnti hins vegar seint á föstudagskvöld að breytingar yrðu gerðar á dagskránni. Aftonbladet greinir frá.

Í stað Haaland munu landsliðsþjálfarinn Ståle Solbakken, Fredrik Aursnes og Andreas Schjelderup mæta á blaðamannafundinn.

Breytingin kom aðeins nokkrum klukkustundum eftir að niðurstaðan í umfangsmiklu máli Manchester City gegn úrvalsdeildinni varð ljós.

Norska liðið hefur ekki gefið upp ástæðu fyrir því að Haaland var tekinn út af blaðamannafundinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×