Sport

„Titlar eða föll hafa breyst á seinustu sekúndu“

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Matthías er þjálfari Vals.
Matthías er þjálfari Vals. Vísir/Diego

„Spennufall, svekktur, við hefðum átt að taka þennan leik, Valsliðið spilaði vel í dag,“ sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals í þungum þönkum eftir 1-1 jafntefli gegn Víkingi á Hlíðarenda.

Valsliðið er enn á lífi í Bestu deildinni eftir leikinn en á fyrir höndum úrslitaleik um að halda sér í deildinni næsta föstudag.

Matthías segir lið sitt þurft að fá betri færi til þess að ná að klára leikinn í kvöld.

„Við þurftum einhvern veginn að komast í fleiri dauðafæri. Þetta var mikið af skotum og svo framvegis, sem er jákvætt en ég hefði viljað komast í betri færi.“

Valur komst yfir á 14. mínútu með góðu marki frá Emmu Hawkins, en skömmu seinna fékk liðið á sig klaufalegt jöfnunarmark eftir darraðardans í teignum. Matthías var langt frá því að vera sáttur með að hafa fengið það mark á sig.

„Því miður er þetta skelfilegt mark sem við fáum á okkur, allt of ódýrt og ég er svekktur með það að sjálfsögðu.“

Komandi vika er risastór fyrir kvennalið Vals í fótbolta í sögulegu samhengi, en liðið hefur aldrei fallið úr efstu deild í 50 ára sögu félagsins. Það gæti þó gerst næsta föstudag, líkt og það hefði getað gerst í kvöld ef leikurinn hefði tapast. Aðspurður út í komandi viku hafði Matthías þetta að segja.

„Já það er sama rútína. Við þurfum að líta á þennan leik, góð frammistaða. Við erum enn þá lifandi og við þekkjum það sem höfum fylgst lengi með knattspyrnu að titlar eða föll hafa breyst á seinustu sekúndu í tímabilum, svo það er allt hægt.“

Eftir úrslit kvöldsins er ljóst að Fram, andstæðingur Vals í lokaumferðinni, kemur pressulaust inn í þann leik eftir að hafa unnið Þór/KA í kvöld og er því hólpið frá falli. Aðspurður hvort það gæti skipt máli eftir viku þá stóð ekki á svörum hjá Matthíasi.

„Ég hugsa það ekki einu sinni. Við þurfum að vera við, við þurfum að spila góðan leik. Ég geri mér ekki grein fyrir hvernig Fram á eftir að mæta, en ég veit að staðreyndin er sú að okkur hefur gengið illa með Fram. Bara það eitt og sér er að við skuldum frammistöðu á móti Fram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×