Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Lovísa Arnardóttir skrifar 29. september 2026 12:54 Andrými var áður rekið í húsnæði við Bergþórugötu en þau eru nú í Bolholti. Vísir/Vilhelm Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) harmar ákvörðun Reykjavíkurborgar að afnema stuðning við fimmtán menningarhópa í formi húsnæðis á sanngjörnu leiguverði. SÍM skorar á borgina að afturkalla þessar uppsagnir eða mæta þeim samstundis með nýrri aðgerðaáætlun. „
Ef það gerist ekki er ómetanlegu uppbyggingarstarfi fórnað, uppbyggingu sem listamenn leggja sjálfir gríðarlegan tíma, vinnu, og eigin fjármuni til að standa straum af,“ segir í yfirlýsingu. Húsnæðið sem um ræðir er til dæmis í Gufunesi, Sævarhöfða, Skerjafirði og á Bergþórugötu. Um er að ræða húsnæði í eigu borgarinnar sem fólk hefur getað leigt fyrir hóflegt gjald. Nýverið var þeim svo tilkynnt um uppsögn samninga og var meðal annars vísað til ófullnægjandi brunavarna. Fjallað var um uppsagnirnar á RÚV fyrir helgi og þar kom fram að meðal þeirra sem hafa misst húsnæði sitt eru Sniglarnir, Reiðhjólabændur, Hringleikur, sirkuslistafélag og fjöldi einyrkja og listamanna eins og Dagur Kári Pétursson kvikmyndagerðar- og tónlistarmaður og Birta Fróðadóttir arkitekt. Vekur upp alvarlegar spurningar um framtíð listalífs Í yfirlýsingu segir SÍM að ákvörðunin virðist tekin í skyndi og hún geti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir listalíf á Íslandi. „Húsnæði á hagstæðu verði er grundvöllur þess að listalíf fái þrifist í borginni. Þessi stefnubreyting Reykjavíkurborgar vekur upp alvarlegar spurningar um framtíðarsýn og menningarlíf í borginni. Öflugt menningarlíf er ríkur partur af sjálfsmynd Reykjavíkurborgar og þarfnast öflugs stuðnings yfirvalda til að halda áfram að skapa verðmæti fyrir borgina,“ segir í yfirlýsingunni. Reykjavíkurborg hefur sagt upp fimmtán leigusamningum við listafólk víða um borgina. Vísir/Vilhelm Þar segir enn fremur að listasamfélagið upplifi of oft að vinna þess og framlag njóti ekki nægilegrar virðingar. „Þegar framlag hins opinbera til skapandi greina er borið saman við stuðning við íþróttastarf er ljóst að ekki er jöfnu saman að bera, og að listirnar bera skertan hlut frá borði. Vinna og framlag listamanna er þó forsenda menningarlegs auðmagns sem skilar sér til samfélagsins með margvíslegum hætti,“ segir í yfirlýsingunni og því sé þessi ákvörðun mikið hryggðarefni. Hún virðist tekin í skyndi og án áætlana og án þess að afleiðingarnar hafi verið metnar til fulls. „Við hvetjum borgarstjórn til að endurhugsa þessa vegferð. Í stað þess að loka á starfsemina með þessum hætti og litlum fyrirvara, teljum við mikilvægt að leita annarra leiða til að tryggja nauðsynlegar breytingar og brunavarnir. Skapandi greinar þurfa skjól og svigrúm til að vaxa og dafna. Með þessari ákvörðun er vegið að framtíð lifandi menningarlífs á Íslandi.“ Ekki hagkvæmt að laga eldvarnir SÍM leggur að lokum áherslu á að sest verði niður með forsvarsfólki listamiðstöðvanna í þeim tilgangi að finna lausnir og tryggja framtíð starfs þeirra sem hafa leigt rýmin. Í frétt RÚV fyrir helgi kom fram í svari frá eignaskrifstofu borgarinnar að alls væri um fimmtán samninga að ræða og að samkvæmt niðurstöðu kostnaðarmats væri ekki hagkvæmt að leggja út í kostnað við að bæta eldvarnir. Húsin séu öll á niðurrifslista og verði mögulega seld vegna breytinga á deiliskipulagi.
Reykjavík Borgarstjórn Menning Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Sjá meira