Sport

Dag­skráin í dag: Blikar í Evrópu og titilvörn Njarð­víkur hefst

Aron Guðmundsson skrifar
Danielle Rodriguez, Íslandsmeistari með Njarðvík 
Danielle Rodriguez, Íslandsmeistari með Njarðvík  Vísir/Anton Brink

Það er nóg um að vera á sportrásum Sýnar í kvöld. Evrópuleikir í fótboltanum og tveir leikir í Bónus deild kvenna ásamt uppgjörsþættinum Bónus körfuboltakvöld.

Veislan hefst á leik Czarni og Breiðabliks í Evrópubikar kvenna í fótbolta klukkan fimm í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 2. Breiðablik í afar slæmum málum þar eftir 6-2 tap á heimavelli í fyrri leik liðanna. Fjögurra marka sveifla í átt Breiðabliks myndi knýja fram farmlengingu.

Klukkan korter yfir sjö hefjast svo tveir leikir í fyrstu umferð Bónus deildar kvenna sem lýkur í kvöld. Íslandsmeistarar Njarðvíkur hefja titilvörn sína á útivelli gegn Val í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland og á sama tíma taka Haukakonur á móti nýliðum Fjölnis. 

Að leikjunum tveimur loknum tekur Bónus körfuboltakvöld við þar sem leikir fyrstu umferðar verða krufnir til mergjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×