Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 2. október 2026 07:02 Ímyndaðu þér ef einhver á þínum vinnustað yrði handtekinn. Hvernig myndi þér líða? Og hversu eldfim yrði staðan innanhús? Fjölmargir vinnustaðir blandast í handtökumál sem birtast í fréttum. Þótt vinnustaðir séu sjaldnast það þekktir að þeir séu nafngreindir. Vísir/Viktor Freyr Á dögunum birtist allt í einu sláandi fyrirsögn á Vísi: Fyrst um að framkvæmdastjóri væri meðal handtekinna í róttækum aðgerðum lögreglu og síðan að sá hinn sami væri framkvæmdastjóri BL.
Forstjórinn brást hratt og vel við, hlaut 10 í kladdann hjá pr-fólki og auðvitað leist okkur öllum vel á að hinn umræddi væri farinn í leyfi. En bíddu… … stöldrum aðeins við. Því þótt einstaka fyrirtæki komist í fréttir af þessu tagi er ekkert ólíklegt að flestar fréttir sem við sjáum og heyrum séu tengdar einhverjum vinnufélögum eða vinnustöðum. Enda alls ekki svo að handtekið fólk hafi glæpa- eða undirheima að sínu aðalstarfi. Þvert á móti getur þetta fólk verið okkar vænstu vinnufélagar. Og ekkert skrýtið þótt sjokkið sé mikið, jafnvel togstreita og söknuður. Eða má sakna? Já, það má alveg sakna … Og það má líða alls konar. Hvað ef eitthvað sambærilegt gerist einhvern tíma á þínum vinnustað? Góðu ráðin við þessi vikulok snúa að því hvernig við getum brugðist við því þegar vinnufélagi – óháð því hvort hann/hún sé okkur náin eða ekki – virðist blandast í einhver slæm mál. Sem síðan taka mánuði að velkjast um í kerfinu. 1. Þú ert ekki Sherlock Holmes og þetta var ekki þér að kenna Það er eðlilegt hjá okkur að byrja að leita að vísbendingum hjá okkur sjálfum. Átti ég ekki að sjá eitthvað? Hvernig gat ég verið svona blind/ur á þetta? Sannleikurinn er sá að við sjáum aðeins það brot af lífi samstarfsfólks sem það velur að sýna okkur. Samkvæmt sérfræðingum Bandarísku sálfræðingasamtakanna (APA) um áföll eru sektarkennd, eftirsjá og tilfinning um stjórnleysi fullkomlega eðlileg fyrstu viðbrögð þegar óvæntir atburðir skekja veruleika okkar. Góða ráðið: Slepptu því að púsla saman fortíðinni. Þú ert samstarfsmaður, ekki rannsóknarlögregla. Þú berð enga ábyrgð á leynilegu líferni eða gjörðum annarra. 2. Kaffistofan er ekki dómstóll – Slökktu á orkusugunni Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“. Endalausar vangaveltur, við „scrollum“ í gegnum fréttamiðla allan liðlangan daginn og refresh-um þess á milli. Hvíslað er alls staðar – kaffistofan iðar og á örfáum dögum getur vinnustaður breyst í eitraðan suðupott. Rannsóknir á vinnusálfræði sýna að langdregin óvissa og stöðugur orðrómur eru meðal stærstu áhættuþátta fyrir andlegt öryggi og vellíðan í vinnuumhverfi. Góða ráðið: Setjið mörk. Leyfið ykkur að segja: „Ég er í sjokki yfir þessu öllu saman, en ég hef ekki orku í að kryfja málið meira í dag.“ Verjið eigin orku og munið að eflaust mun fátt skýrast að fullu fyrr en eftir langan tíma hvort eð er. 3. Það má þykja vænt um manneskjuna og fyrirlíta brotið Eitt það erfiðasta við svona áföll er hinn svokallaði „trúnaðarbrestur“. Þú ert reið/ur út í viðkomandi fyrir að koma vinnustaðnum í þessa stöðu en finnur kannski um leið fyrir samúð með honum eða fjölskyldu hans. Sálfræðingar leggja áherslu á að þversagnakenndar tilfinningar séu mannlegar og eðlilegar þegar fólk upplifir trúnaðarbrest frá einhverjum sem það umgengst daglega. Góða ráðið: Ekki dæma þig fyrir að finna fyrir sorg eða söknuði eftir gömlu rútínunni, jafnvel þótt ásakanirnar séu þungbærar. Það er engin ein rétt leið til að syrgja brostinn trúnað. 4. Krefjist stuðnings – „Business as usual“ er ekki í boði Hættulegasta leið stjórnenda er að halda að hægt sé að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) varar sérstaklega við því í leiðbeiningum sínum um geðheilbrigði á vinnustöðum að ef áfallateymum og faglegri hjálp er ekki beitt strax geti afleiðingarnar orðið langvarandi kulnun, kvíði og tortryggni innan starfsmannahópsins. Góða ráðið: Ræðið opinskátt við stjórnendur um að fá vinnusálfræðing eða fagaðila á svæðið. Það þarf að hreinsa loftið og gefa fólki rými til að púsla saman öryggiskenndinni aftur.
Góðu ráðin Tengdar fréttir Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Gular viðvaranir, lárétt rigning og morgnar sem líkjast helst miðnætti. Haustið á Íslandi bankar sjaldan kurteislega á dyrnar; það sparkar þeim upp. 25. september 2026 07:00 Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Þessi vikulok helgum við góðu ráðunum því andrúmslofti sem fylgir því þegar verkföll eru yfirvofandi og fólk jafnvel dregið í dilka. Hvað er átt við með því? 18. september 2026 07:02 Þegar allt er að fara fjandans til… Fólk var orðið langþreytt á stöðugu gargi um viðræður af eða á við ESB: Já eða Nei. Þegar gengið var að kjörborðinu 29. ágúst önduðu margir léttar, einfaldlega dauðfegnir að þeirri hringiðu væri lokið. 11. september 2026 07:02 Mest lesið Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Sjá meira
Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Gular viðvaranir, lárétt rigning og morgnar sem líkjast helst miðnætti. Haustið á Íslandi bankar sjaldan kurteislega á dyrnar; það sparkar þeim upp. 25. september 2026 07:00
Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Þessi vikulok helgum við góðu ráðunum því andrúmslofti sem fylgir því þegar verkföll eru yfirvofandi og fólk jafnvel dregið í dilka. Hvað er átt við með því? 18. september 2026 07:02
Þegar allt er að fara fjandans til… Fólk var orðið langþreytt á stöðugu gargi um viðræður af eða á við ESB: Já eða Nei. Þegar gengið var að kjörborðinu 29. ágúst önduðu margir léttar, einfaldlega dauðfegnir að þeirri hringiðu væri lokið. 11. september 2026 07:02