„Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Valur Páll Eiríksson skrifar 30. september 2026 11:15 Heimir Hallgrímsson staðfestir að Írland mætir Ísraelum öðru sinni. Hann dáist að meðhöndlun landsliðsmanns Írlands sem á ættir að rekja til Ísrael á erfiðri stöðu. Getty/Stephen McCarthy Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, hefur staðfest að lið hans muni spila seinni leik sinn í Þjóðadeildinni gegn Ísrael á sunnudaginn kemur. Hann segir „einbeitinguna við fótbolta“ í miðjum stormi mótmæla. Leikmaður írska liðsins sem rekur ættir til Ísraels hefur þá heillað Heimi síðustu daga.
Aðgerðahópurinn „Stop the Game“ hefur hvatt stuðningsmenn til að koma saman á Aviva-leikvanginum fyrir heimaleik Írlands gegn Austurríki á morgun til að mótmæla leikjum sem þeir segja að hjálpi til við að „íþróttaþvo þjóðarmorð“. Írland vann 3-0 sigur á Ísrael í heimaleik Ísraela í Ungverjalandi á sunnudaginn var. Degi fyrr hafði dagskrá liðsins frestast um fjóra klukkutíma vegna fundarhalda um leikinn. Leikmannahópur Íra kaus um hvort taka ætti þátt í leiknum og Heimir staðfesti á blaðamannafundi í dag að hann væri tilbúinn að mæta þeim aftur í Serbíu á sunnudaginn kemur þrátt fyrir harðvítuga umræðu í landinu. „Ég verð að einbeita mér að fótboltanum. Ég ætla að láta aðra hugsa um öryggismál og slíkt,“ sagði Heimir á blaðamannafundi fyrir leikinn. „Ég ætla ekki að leyfa utanaðkomandi áreiti að hafa áhrif á einbeitingu mína á fótboltann. Ég verð að láta þá sem sjá um öryggismál hugsa um það.“ Aðspurður hvort leikmenn hefðu tilkynnt honum um annan fund vegna seinni leiksins gegn Ísrael sagði hann: „Nei, það hafa þeir ekki gert.“ „Írska knattspyrnusambandið hefur augljóslega sagt að við munum spila báða leikina og við ætlum að standa við það. Það var ætlun okkar þegar við komum í þetta verkefni og það er enn ætlun okkar,“ „Þetta hefur verið erfitt, sérstaklega fyrir leikmennina. Þetta hefur verið virkilega erfitt. Eins og í öllu þessu verkefni tökum við þetta nánast einn dag í einu. En það er þegar búið að ákveða að við munum spila leikina,“ segir Heimir. Sá sem Heimir virðir mest í heiminum um þessar mundir Miðjumaðurinn Finn Azaz, sem spilar með Southampton, á sterk fjölskyldutengsl við Ísrael í móðurætt og er sagður hafa talað af ástríðu við liðsfélaga sína í umræðum þeirra á laugardaginn var. Finn Azaz, leikmaður Írlands sem á ættir að rekja til Ísrael, er sá sem nýtur mestrar virðingar Heimis við erfiðar aðstæður.EPA/JOSE SENA GOULAO Hann var ekki valinn í fyrri leikinn gegn Ísrael og sagði Heimir að hann væri „í annarri stöðu en aðrir leikmenn“ en gæti komið aftur til greina gegn Austurríki. Hvort hann verði með í ferðinni til Serbíu hefur ekki enn verið ákveðið, en Heimir talaði lofsamlega um hvernig Azaz hefur hagað sér á þessum erfiðu tímum. „Finn hefur sýnt ótrúlega tilfinningastjórn og tilfinningagreind,“ segir Heimir. 'He is one of the persons I admire the most in the world at the moment'Heimir Hallgrimsson praises Finn Azaz after a tough few days for the Ireland midfielder, who has Israeli heritage on his mother's side #rtesport pic.twitter.com/WlFpy2h1h8— RTÉ Sport (@RTEsport) September 30, 2026 „Hann er einn af þeim sem ég dáist mest að í heiminum um þessar mundir ... hvernig hann hefur hagað sér í öllu þessu. Þetta snýst um að vera hluti af liði svo maður þarf að hlusta á allar skoðanir,“ „Ég hef ekki orð til að útskýra það, þið mynduð ekki skilja. Innan hópsins nýtur hann svo mikillar virðingar meðal þessara leikmanna. Að leggja þetta extra á sig til að vera hluti af þessu liði er bara ótrúlegt,“ segir Heimir.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Írland Þjóðadeild karla í fótbolta Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjá meira