Viðskipti innlent

Spá ó­breyttum vöxtum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er einn þeirra sem tekur ákvörðun um hvort að breytingar verði gerðar á stýrivöxtum.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er einn þeirra sem tekur ákvörðun um hvort að breytingar verði gerðar á stýrivöxtum. Vísir/Vilhelm

Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga hefur ekki mælst meiri í tvö ár.

Þrátt fyrir aukna verðbólgu, sem er núna 5,9 prósent, gerir greiningardeildin ráð fyrir óbreyttum vöxtum þar sem aukningin skýrist ekki af aukinni innlendri eftirspurn. Nefndin hafi hækkað vexti á síðustu þremur fundum sínum um 0,25 prósentustig í einu en hafi tekið fram við síðustu hækkun að hún teldi aðhaldið nægjanlegt.

„Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestins í kjarasamningum,“ segir í tilkynningu greingardeildarinnar.

Muni lýsa yfir áhyggjum

Frá því að síðasta ákvörðun nefndarinnar var tekin hefur verðbólgan hækkað um 0,6 prósentustig en rekja má aukninguna að mestu leyti til hækkunar á eldsneyti. Í byrjun september var tímabundin lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti felld niður auk þess sem eldsneytisverð hefur hækkað á heimsmarkaði.

„Ef engar breytingar hefðu orðið á virðisaukaskattinum á eldsneyti hefði verðbólga mælst óbreytt á milli mánaða í september,“ segir í tilkynningunni.

Þá muni gjaldhækkanir í fjárlagafrumvarpi Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, sem hann kynnti í ágúst hafa átt þátt í því að ýta verðbólguvæntingum aftur upp. Greiningardeildin gerir því ráð fyrir því að nefndin muni lýsa yfir áhyggjum af boðuðum gjaldahækkunum en það muni ekki hafa áhrif á vaxtaákvörðunina sjálfa.

„Við síðustu ákvörðun mátti greina mun mildari tón hjá nefndinni en áður. Nefndin virtist telja að annarrar umferðar áhrif verðhækkananna, sem einkum mátti rekja til hækkana á opinberum gjöldum og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndunum væru minni en upphaflega var óttast,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×