Sport

Leyfði ný­liðanum ekki að halda í hefðir

Andri Broddason skrifar
Gavin McKenna var ekki fyrstur á svellið eins og hefð er fyrir hjá nýliðum í NHL-deildinni.
Gavin McKenna var ekki fyrstur á svellið eins og hefð er fyrir hjá nýliðum í NHL-deildinni. Thomas Skrlj/Getty Images

Hefð er fyrir því að nýliðar í NHL-deildinni í íshokkí fái að taka hring á ísnum fyrir fyrsta leikinn sinn. Gavin McKenna, nýliði Maple Leafs, var spenntur að fá að taka sinn fyrsta hring en markmaður liðsins, Sergei Bobrovsky, fór á ísinn á undan honum og stal augnablikinu hans McKenna.

Bobrovsky er, eins og margir íþróttamenn, mjög hjátrúafullur og er það þekkt hjá markmönnum í íshokkí að þeir þurfa að viðhalda sinni rútínu. Eitt af því sem hann þarf að gera fyrir leiki er að vera fyrstur á ísinn og það var greinilega enginn nýliði að fá að breyta því.

McKenna virtist ekki láta þetta angra sig mjög mikið en netverjar hafa komið honum til varnar og nefnt að Bobrovsky væri jafnvel ekki góður liðsfélagi. McKenna var samkvæmt Toronto Sun búinn að bjóða 14 ættingjum á leikinn og því leiðinlegt fyrir fjölskylduna að fá ekki að sjá McKenna inni á svellinu.

McKenna er frá Whitehorse í Kanada sem er í norðvesturhluta landsins. Toronto er staðsett á suðausturhluta landsins og því hefur þetta verið mikið ferðalag fyrir fjölskylduna.

McKenna hefur verið númer 72 á treyjunni sinni nánast allan ferilinn en eftir að Bobrovsky kom til liðsins bað hann um að fá töluna 72. Hann hefur notast við hana nánast allan ferilinn sinn og er því McKenna númer 92 í staðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×