Viðskipti innlent

„Hlutir sem við vorum ekki sam­mála um“

Agnar Már Másson skrifar
Eftir sautján ára starf sagði Hörður Arnarson í dag upp störfum sem forstjóri Landsvirkjunar, orkufyrirtækis ríkisins.
Eftir sautján ára starf sagði Hörður Arnarson í dag upp störfum sem forstjóri Landsvirkjunar, orkufyrirtækis ríkisins. Samsett Mynd

Skyndileg starfslok Harðar Arnarsonar sem forstjóra Landsvirkjunar koma í kjölfar ágreinings milli hans og stjórnar Landsvirkjunar. Stjórnarformaðurinn segir forstjórann og stjórnina ekki ávallt hafa verið sammála um allt en hún þakkar Herði fyrir glæsilegan sautján ára feril hjá félaginu.

Þegar Hörður tilkynnti starfsfólki Landsvirkjunar um starfslok sín í dag sagði hann samkvæmt heimildum Vísis að ákvörðunin hefði nokkuð með ágreining milli hans og stjórnar Landsvirkjunar að gera en hann fór þó ekki nánar út í það.

Þó nefndi hann einnig að hann væri búinn að starfa sem forstjóri í 27 ár, þar af sautján hjá Landsvirkjun, og hefði lofað eiginkonunni að verja meiri tíma með fjölskyldunni. 

Forstjórinn fráfarandi veitti ekki viðtöl eftir fundinn. 

Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, segir í samtali við Vísi að Hörður og stjórnin hafi ekki alltaf verið sammála um allt.

„Það er ekki frá miklu að segja. Eðlilega er fólk ekki alltaf sammála um allt. Hörður ákvað að taka þetta skref örlítið fyrr en ella,“ segir Brynja við Vísi.

Hún segir að stjórnin taki ákvörðun Harðar í sátt og lýsi þakklæti fyrir hans „17 ára glæsilega feril“ hjá Landsvirkjun og það sem hann hafi gert fyrir félagið. 

Hörður tók við stjórn fyrirtækisins árið 2009. Jóhann Páll Jóhannsson orkumálaráðherra þakkar Herði fyrir störfin í skoðanagrein á Vísi.

Að svo stöddu er Hörður farinn í vikufrí en hann á síðan eftir að starfa fram í lok október til þess að ganga frá lausum endum, að sögn Brynju.

Hinn 1. nóvember tekur Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, tímabundið við starfi forstjóra. Brynja segir að Kristín sé „gíðarlega öflugur stjórnandi“ og að Landsvirkjun verði í góðum höndum á meðan Herði er fundinn arftaki.

En var eitthvað ósætti milli Harðar og stjórnarinnar?

„Eins og hann sagði á starfsmannafundinum þá voru hlutir sem við vorum ekki sammála um en það er bara eins og gengur og gerist,“ svarar stjórnarformaðurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×