Sport

Arnar ekki lengur yfirlýsingaglaður

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnar þarf á góðri frammistöðu að halda frá sínu liði á morgun.
Arnar þarf á góðri frammistöðu að halda frá sínu liði á morgun. vísir/vilhelm

Ísland mætir Búlgaríu á morgun og það er krafa á að liðið skili þremur stigum í leik gegn liði sem hefur ekki getað neitt í Þjóðadeildinni.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari steig varlega til jarðar og var ekki yfirlýsingaglaður. Líklega skynsamlegt enda ekki beint innistæða fyrir stórum yfirlýsingum.

Lokaleikirnir í neðri hluta Bestu deildar kvenna fara fram í kvöld og svo gæti farið að Valur falli í fyrsta skiptið.

Spáin fyrir Bónus deild karla kom út í dag. Álftanesi spáð deildarmeistaratitlinum en meisturum Grindavíkur aðeins spáð fjórða sæti.

Besta sætið rýnir vel í spána í þætti dagsins.

Þátturinn er sem fyrr aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×