Fótbolti

Strákarnir sitja fastir

Valur Páll Eiríksson skrifar
U21 árs landsliðið vann frábæran 5-1 sigur á Sviss í síðasta leik.
U21 árs landsliðið vann frábæran 5-1 sigur á Sviss í síðasta leik. Guðmundur/Vísir

U21 landslið karla í fótbolta situr fast hér á landi vegna þoku í Færeyjum. Liðið á að mæta heimamönnum á þriðjudag og vonast er til að komast út á morgun.

U21 landsliðið átti að fljúga út til Færeyja í dag í mikilvægan lokaleik í undankeppni EM 2027. Lokaumferð riðilsins fer fram á morgun og þurfa strákarnir okkar að vinna sigur og sömuleiðis treysta á að Frakkar vinni Sviss til að komast í umspil um sæti á EM.

Liðið átti að fljúga til Færeyja í dag en vegna þoku þar ytra er ekki hægt að lenda í Þórshöfn. Fluginu var aflýst sökum þess og strákarnir sitja fastir hér heima.

Samkvæmt tilkynningu KSÍ verður reynt að fljúga aftur til Þórshafnar á morgun og vonast til að aðstæður verði betri. Færeyska knattspyrnusambandið og UEFA séu upplýst um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×