Innlent

Einn í fram­boði til vara­for­manns enn sem komið er

Kjartan Kjartansson skrifar
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingar og frambjóðandi til varaformanns, fylgist grannt með í þingsal.
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingar og frambjóðandi til varaformanns, fylgist grannt með í þingsal. Vísir/Vilhelm

Enginn hefur enn boðið sig fram gegn þingflokksformanni Samfylkingarinnar í varaformannskjöri sem fer fram á flokksstjórnarfundi um helgina. Fundurinn verður haldinn í Suðurnesjabæ þar sem meirihlutasamstarf Samfylkingar við Sjálfstæðisflokk sprakk í loft upp um helgina.

Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er einn í framboði til varaformanns enn sem komið er. Framboðsfrestur er þó þar til á fundinum sjálfum sem fer fram laugardaginn 10. október.

Aðeins þeir sem eiga sæti í flokksstjórn Samfylkingarinnar geta boðið sig fram til varaformannsembættisins og hafa kosningarétt í kjörinu. Boðað er til varaformannskjörsins vegna þess að Guðmundur Árni Stefánsson óskaði eftir lausn frá embættinu eftir sveitarstjórnarkosningar í vor.

Sá sem verður kjörinn varaformaður á fundinum um helgina situr út kjörtímabil fráfarandi varaformanns.

Ein ályktunartillaga frá félögum í flokksstjórninni er komin fram fyrir fundinn. Hún felur í sér að flokkurinn skipi starfshóp til þess að útfæra tillögur að úrræðum sem hægt sé að beita áður en gripið skuli til frelsissviptingar og vistunar útlendinga í lokuðum brottfararbúðum sem fjallað var um í frumvarpi dómsmálaráðherra Viðreisnar sem varð að lögum í sumar.

Flokksstjórnarfundurinn er haldinn í Suðurnesjabæ þar sem Samfylkingin var í meirihluta þar til um helgina. Þá slitnaði upp úr samstarfi flokksins við Sjálfstæðisflokksins vegna trúnaðarbrests. 

Heimildir fréttastofu hermdu að sá trúnaðarbrestur tengdist tilraun Haralds Helgasonar, annars manns á lista Sjálfstæðisflokksins, til þess að mynda nýjan meirihluta með fulltrúm Framsóknarflokksins og Miðflokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×