Innlent

Ögur­stund í kjara­málum og Marco Ru­bio í heim­sókn

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna er í opinberri heimsókn á Íslandi og fundaði með utanríkisráðherra og forsætisráðherra.

Fjallað verður um fundinn í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 6. október 2026

Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun. Formaður VR segir samtalið efnismeira en áður þó að enn sé talsverð gjá á milli og hætta á að samningar falli. Ögurstund er í kjaramálum.

Bandaríska varnarmálaráðuneytið segist ætla að taka fyrrverandi majór í hernum sem framdi mannskæða skotárás í herstöð af lífi með aftökusveit. Þetta verður í fyrsta skipti sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.

Samtök um bíllausan lífstíl leggjast á móti áformum meirihlutans og Miðflokks í umhverfis- og skipulagsráði um að bæta við hægribeygjuframhjáhlaupi þegar ekið er af Bæjarhálsi yfir á Höfðabakka til norðurs.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, kallar eftir því að olíufélögin lækki álagningu sína og að stjórnvöld stígi sömuleiðis inn með því að lækka virðisaukaskatt á ný.

Í sportinu fjöllum við um landsleik Íslands gegn Eistlandi í kvöld. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×