Innlent

Ó­veður í að­sigi: Lík­legt að flug raskist

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Hér má sjá ferðamenn við Hörpu í einu óveðrinu. Stormi er spáð á miðvikudag og veðurfræðingur segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna.
Hér má sjá ferðamenn við Hörpu í einu óveðrinu. Stormi er spáð á miðvikudag og veðurfræðingur segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. Vísir/Vilhelm

Viðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna.

„Á miðvikudaginn nálgast úr suðri mjög kröpp og mjög djúp lægð og miðjan ætlar að fara yfir austurhluta landsins. Þannig það stefnir í óveður á öllu landinu,“ segir Teitur Arason, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. 

Hann segir óveðrið tvískipt. Fyrri hluta dagsins megi búast við austanstormi með rigningu á láglendi og snjókomu til fjalla. Seinna um kvöldið sé hins vegar reiknað með snjókomu, hríðaveðri og norðanstormi á Vestfjörðum og Norðurlandi. „Austanveðrið er í hámarki fyrir hádegi en það versta í þessu verður sennilega norðanáttin með hríðinni. Það verður verst á Vestfjörðum seinni partinn.“

Einhverjar breytingar gætu þó orðið á spánni þar sem óvíst sé hvar lægðamiðjan lendir.

„Inni í lægðarmiðjunni er logn, eða svikalogn eins og við getum kallað það. Þannig að fólk getur verið viðbúið því að ef smávægileg breyting verður á ferli lægðarinnar, að það geti gjörbreytt veðrinu í viðkomandi landshluta. En heilt yfir má búast við óveðri á miðvikudaginn.“

Á höfuðborgarsvæðinu verði líklega ausandi rigning fyrripartinn, hvassviðri og slydda um kvöldið. Gular og appelsínugular viðvaranir verða gefnar út í dag og búast má við samgöngutruflunum.

„Mér finnst líklegt að flug raskist. Það er ansi hvasst í háloftunum með þessari lægð,“ segir Teitur.

Ganga frá lausamunum

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir mögulegt að lægðin verði sú dýpsta í októbermánuði hér á landi í sextíu ár. Teitur tekur undir að hún sé óvenjulega djúp. Hann biður fólk um að undirbúa sig.

„Það á að vera fínasta veður í dag og á morgun og það má taka inn lausamuni og kannski að hliðra til plönum og vera minna á ferðinni. Fólk á ekki að gera ráð fyrir því að komast ferða sinna á miðvikudaginn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×