Skoðun

Hvað fær Ís­land fyrir fisk­eldi?

Kristinn H. Gunnarsson skrifar

Það eru ekki nema rétt um 10 ár síðan laxeldi í sjókvíuum hér við land varð að atvinnugrein sem munar um. Aðstæður eru góðar, vaxtarmöguleikar miklir og laxeldið er arðvænlegt. Í dag er Ísland 6. mesta framleiðsluland í heimi.með um 50 þúsund tonna framleiðslu í fyrra. Í ár stefnir í að útflutningsverðmæti verði um 70 milljarðar króna. Framleiðslumöguleikarnir, að meðtöldu landeldi eru taldir vera um 400 þúsund tonn árlega.

Þúsund störf

Við fiskeldið, sem er nánast eingöngu laxeldi, starfa liðlega 1.000 manns. Það eru beinu störfin. Ætla má að óbeinu störfin séu jafnmörg. Launagreiðslur eru samkvæmt tölum Hagstofunnar 8,4 milljarðar króna á fyrstu átta mánuðum ársins. Það gerir liðlega einn milljarður króna á mánuði.

Viðsnúningur á Vestfjörðum

Laxeldið er lang umfangsmest á Vestfjörðum enn sem komið. Þar eru stærstu fyrirtækin, þar hefur verið gríðarleg erlend fjárfesting og þar eru störfin flest. Síðustu sex árin hefur fólki fjölgað á Vestfjörðum meira en fjölgunin hefur verið á landsvísu. Það er mikill viðsnúningur frá þrjátíu ára tímabili á undan þegar fólki fækkað um 35% á Vestfjörðum á sama tíma og landsmönnum fjölgaði um 25-30%. Vestfirðir eru loksins í sókn, þeir eru loksins hluti af landsþróuninni. En það vantar um 6.000 manns sem væru búsettir hér ef íbúaþróun hefði fylgt landsþróuninni.

Áttföldun möguleg

Það er mögulegt með góðu móti að áttafalda umsvifin í fiskeldinu. Það er mat opinberra aðila og byggt á því að spilla ekki umhverfinu. Útflutningstekjur gætu verið 450 – 500 milljarðar króna á hverju ári. Þessi nýju verðmæti sem sköpuð verða munu standa undir bættum lífskjörum almennings á komandi árum. Leiðin er að nýta auðlindir landsins til þess að skapa verðmæti og ný störf.

Áframhaldandi uppbygging

Áframhaldandi uppbygging fiskeldis er nauðsynleg. Til þess þarf bætt lagaumhverfi sem hvetur til aukinnar fjárfestingar og framleiðslu. Það er ekki spurning hvort þurfi aukna verðmætaframleiðslu heldur hitt að án hennar munu lífskjör almennings staðna og síðan versna.

Einkafyrirtæki og erlendir fjárfestar hafa á fáum árum byggt upp nýjan öflugan atvinnuveg á landinu. Innlend stjórnvöld þurfa að fylgja því eftir og styðja við áframhaldandi uppbyggingu.

Ísland fær bætt lífskjör almennings fyrir fiskeldi.

Höfundur er ritstjóri.




Skoðun

Skoðun

Ertu að segja sögu?

Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar

Sjá meira


×