„Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Oddur Ævar Gunnarsson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 14. október 2026 13:30 Halla segist spennt fyrir þinginu, verkalýðshreyfingin eigi meira sameiginlegt en það sem sundri. Vísir/Einar Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist ekki skilja hvers vegna tillaga um fækkun varaforseta ASÍ sé orðin að jafn stóru máli og raun ber vitni. Hún segir mun stærri mál til umfjöllunar á ASÍ þingi sem hófst í dag og segir ekki anda köldu á milli hennar og Sólveigar Önnu í daglegu lífi, né á milli hennar og nokkurs annars.
Þetta kom fram við setningu ASÍ þings á Hilton hóteli í morgun þar sem Tómas Arnar Þorláksson ræddi við Höllu. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur sakað hana um að ætla að sölsa undir sig ASÍ með tillögu um fækkun varaforseta ASÍ úr þremur í einn. Halla segir að þingið snúist um framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu, átök hafi alltaf einkennt verkalýðshreyfinguna. Erjur og deilur hafa sett sinn svip á síðustu daga fyrir þingið. Sólveig Anna hefur átt í orðaskiptum við þig á samfélagsmiðlum, við töluðum við hana áðan og hún sagði hreinlega koma til greina að Efling myndi segja sig úr Alþýðusambandinu. Er einhver leið til að koma til móts við hana, hefurðu trú á því að það sé hægt að lægja þessar öldur? „Þessar erjur eru náttúrulega dálítið á einn veg. Hér inni erum við bara með lýðræðislega ferla til þess að taka ákvarðanir og við þurfum að nýta þá. Það hafa oft verið átök í verkalýðshreyfingunni og þá eru þetta ferlarnir sem við höfum til að fjalla um slík átök. Ég hef ekki orðið vör við mikinn málefnanlegan ágreining í hreyfingunni hinsvegar, þannig mér finnst mikilvægt að við höldum sjónar á málefnunum og fjöllum um þau því þar á launafólk gríðarlega mikla og ríka sameiginlega hagsmuni.“ Halla segir verkalýðshreyfingar eiga sína fulltrúa í miðstjórn ASÍ. Þar sé hlutfallsleg skipting til þess að tryggja að röddunum sé skipt og allir sem þurfi fái að koma að borðinu, þar eigi valdið og ábyrgðin heima. „Ég skil satt að segja ekki af hverju þetta varaforsetamál er orðið að svona stóru máli. Miðstjórn leggur til að fækka þeim í einn þar sem þeir hafa ekkert eiginlegt hlutverk samkvæmt lögum ASÍ. Það snýst ekki um að útiloka einn eða neinn, heldur bara um að ákvarðanatakan sé á réttum stöðum. Þetta hlutverk er nánast ekkert í dag. Þannig að ég styð þessa tillögu en mér finnst líka bara miklu stærri og mikilvægari mál sem við erum að fjalla um hérna núna.“ Og ertu búin að hitta Sólveigu Önnu í dag? Andar köldu á mill ykkar líka í persónulegum samskiptum eða bara á samfélagsmiðlum? „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra.“ Halla segist standa við það sem hún hafi áður sagt, að verði breytingatillaga samþykkt um fækkun varaforseta og forseti ASÍ komi úr röðum VR þá muni hún draga framboð sitt til baka til varaforseta. „Það finnst mér bara eðlilegt en fyrst og fremst þá þarf varaforseti að vera einhver sem þing Alþýðusambandsins treystir til þess að gegna í forföllum forseta. Það er það sem varaforseti þarf að geta gert.“
Stéttarfélög Kjaramál ASÍ Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Fleiri fréttir Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Sjá meira