Lífið

Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð

Agnar Már Másson skrifar
Ætli hún taki upp Bond-eftirnafnið?
Ætli hún taki upp Bond-eftirnafnið? Samsett Mynd

Áhrifavaldurinn og fyrr­verandi knattspyrnumaðurinn Sigurður Gísli Bond og hársnyrtirinn Birta Huld Hauksdóttir eru trúlofuð.

Þau greina frá tíðindunum í færslu á Instagram. 

„Hún sagði JÁ,“ skrifar Sigurður, yfirleitt kallaður Siggi Bond.

Birta Huld er hársnyrtir hjá Session hárstofu en hún átti einmitt 26 ára afmæli í dag.

Sigurður er 31 árs en hann er fyrrverandi knattspyrnumaður og lék áður með FH. Í dag er hann fyrirferðamikill í umræðu um íslenska knattspyrnu og er tíður gestur í hlaðvarpinu Dr. Football. Hann fékk eftirnafni sínu breytt í Bond árið 2021.

Í sumar vakti Sigurður mikla athygli þegar hann birtist óvænt í myndbandi hjá bresku YouTube-stjörnunni An­gry Gin­ge sem sakaði Íslendinginn um kynþátta­fordóma á leik Eng­lands og Gana á HM í fót­bolta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.