Körfubolti

Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid

Sindri Sverrisson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason og Edy Tavares mættust í Madrid í dag.
Tryggvi Snær Hlinason og Edy Tavares mættust í Madrid í dag. Getty/Dennis Agyeman

Tryggvi Snær Hlinason hafði í nógu að snúast gegn einu allra besta liði Evrópu í dag þegar Bilbao Basket mætti Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Leikið var í Madrid og urðu gestirnir að sætta sig við stórt tap, 119-84, eftir að hafa lent 36-13 undir í fyrsta leikhlutanum.

Tryggvi spilaði tuttugu mínútur í leiknum og skoraði níu stig auk þess að taka þrjú fráköst og gefa eina stoðsending. Þá stal hann boltanum einu sinni.

Real Madrid, sem lék til úrslita í EuroLeague á síðustu leiktíð, hefur unnið fyrstu fjóra leiki sína í spænsku deildinni en Bilbao hefur unnið tvo og tapað tveimur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×