Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Björn Berg skrifar 20. október 2026 07:03 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm 65 ára kona spyr: „Er með lífeyri hjá LSR og er að velta fyrir mér ávinningi af því að byrja að taka lífeyri, hálfan eða fullan, núna 65 ára samhliða 100% vinnu. Borgar það sig? Getur þú ráðlagt mér?“ Það fer eftir ýmsu hvenær lífeyristaka hentar og nær ómögulegt að fullyrða um hvenær hún borgi sig, þar sem um ævilangar greiðslur er að ræða. Við getum þó að sjálfsögðu velt fyrir okkur mögulegum kostum og göllum. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Hvernig eru réttindi hjá LSR? Þar sem þú hefur safnað lífeyrisréttindum hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) þarf að líta sérstaklega á hvernig þau réttindi eru. Þú nefnir ekki í hvaða deild sjóðsins þú ert eða hvernig ávinnslu réttinda er háttað en flestir safna þar lífeyri eftir einni af þremur leiðum: A deild með aldurstengdri réttindaávinnslu: Svipað og hjá flestum almennum lífeyrissjóðum. Sækja má lífeyri eftir sextugt og réttindin sem fást fyrir hverja krónu verða minni eftir því sem sjóðfélagi eldist. A deild með jafnri ávinnslu réttinda: Ekki hægir á ávinnslu með aldri. Sérlega dýrmætt fyrir þá sem eru á síðari hluta starfsævinnar. B deild: Í hverjum mánuði er safnað prósentu af launum. Nema ákveðnum viðmiðum sé náð eða önnur réttindi fylgi er fyrst hægt að sækja þaðan greiðslur 65 ára og vaxa réttindi ekki eftir það vegna aldurs (en vaxa áfram vegna innborgana). Hentar að sækja þaðan lífeyri samhliða 100% vinnu? Eitt af því sem hafa þarf í huga við lífeyristöku samhliða fullri vinnu eru skattarnir. Lífeyrisgreiðslur eru skattlagðar eins og laun og bætast því ofan á aðrar skattskyldar tekjur okkar. Ef launin þín eru nú að nýta persónuafslátt og lægri skattþrepin getur stór hluti lífeyrisgreiðslna jafnvel lent í hærra skattþrepi en ef lífeyrir væri sóttur eftir starfslok. Þá hefur lífeyristaka samhliða fullri vinnu ólík áhrif á þær deildir sjóðsins sem ræddar voru hér að ofan. Nema tilteknum viðmiðum sé náð er þannig ekki mögulegt að sækja greiðslur úr B deild ef enn er unnið fyrir hið opinbera, nema starfshlutfall sé komið niður fyrir 50%. Sé um jafna ávinnslu réttinda að ræða hægist á ávinnslu um helming ef fullur lífeyrir er tekinn, en ekki ef sótt er um hálfan lífeyri. Þetta er vissulega flókið og það getur verið erfitt að átta sig á réttindaávinnslu lífeyrissjóða en greinargóðar upplýsingar má finna á vef LSR. Aðrar mögulegar leiðir Eins og þú heyrir er ekki hægt að fullyrða að lífeyristaka muni henta þér akkúrat núna, en þú skalt endilega kynna þér þinn lífeyri á vefnum eða með samtali við starfsfólk lífeyrissjóðsins. Ef þörf er á auknum tekjum gæti einnig hentað að sækja viðbótarlífeyrissparnað eða aðrar tegundir séreignar. Þá getur stundum verið áhugaverður kostur að blanda saman hálfum launum, hálfum lífeyrisgreiðslum og hálfum greiðslum frá Tryggingastofnun í leið sem kölluð er hálfur lífeyrir. Hvernig vitum við hvað hentar? Ein algengustu mistökin sem ég sé sjóðfélaga LSR gera eru að herma hver eftir öðrum og það virðist mjög vinsælt. Aðstæður þínar eru ekki endilega þær sömu og aðstæður vinnufélaganna. Vegna ólíkra tegunda lífeyrisréttinda eru réttindin heldur ekki þau sömu. Því getur kaffistofan verið stórhættuleg og þú verður að lofa mér því að kynna þér þín réttindi vel áður en þú tekur ákvörðun um lífeyristöku. Hver veit? Það má vel vera að það komi í ljós að nú sé tilvalinn tími til að sækja um lífeyrisgreiðslur. Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Eldri borgarar Kjaramál Tengdar fréttir Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? 31 árs karlmaður spyr: „Ég er búinn að vera með óverðtryggt húsnæðislán á breytilegum vöxtum yfir alla þessa vaxta vitleysu seinustu ár. Svo mig langar til þess að forvitnast hvort það sé skynsamlegt fyrir mig að fara yfir í fasta vexti eða ekki? Minnkar eignamyndunin á föstum vöxtum miðað við breytilega vexti? Þetta er lán upp á sirka 41.000.000 kr.“ 8. september 2026 09:34 Af hverju eru allir að eyða svona miklu? 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ 25. ágúst 2026 07:00 Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00 Mest lesið Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Sjá meira
Það fer eftir ýmsu hvenær lífeyristaka hentar og nær ómögulegt að fullyrða um hvenær hún borgi sig, þar sem um ævilangar greiðslur er að ræða. Við getum þó að sjálfsögðu velt fyrir okkur mögulegum kostum og göllum. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Hvernig eru réttindi hjá LSR? Þar sem þú hefur safnað lífeyrisréttindum hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) þarf að líta sérstaklega á hvernig þau réttindi eru. Þú nefnir ekki í hvaða deild sjóðsins þú ert eða hvernig ávinnslu réttinda er háttað en flestir safna þar lífeyri eftir einni af þremur leiðum: A deild með aldurstengdri réttindaávinnslu: Svipað og hjá flestum almennum lífeyrissjóðum. Sækja má lífeyri eftir sextugt og réttindin sem fást fyrir hverja krónu verða minni eftir því sem sjóðfélagi eldist. A deild með jafnri ávinnslu réttinda: Ekki hægir á ávinnslu með aldri. Sérlega dýrmætt fyrir þá sem eru á síðari hluta starfsævinnar. B deild: Í hverjum mánuði er safnað prósentu af launum. Nema ákveðnum viðmiðum sé náð eða önnur réttindi fylgi er fyrst hægt að sækja þaðan greiðslur 65 ára og vaxa réttindi ekki eftir það vegna aldurs (en vaxa áfram vegna innborgana). Hentar að sækja þaðan lífeyri samhliða 100% vinnu? Eitt af því sem hafa þarf í huga við lífeyristöku samhliða fullri vinnu eru skattarnir. Lífeyrisgreiðslur eru skattlagðar eins og laun og bætast því ofan á aðrar skattskyldar tekjur okkar. Ef launin þín eru nú að nýta persónuafslátt og lægri skattþrepin getur stór hluti lífeyrisgreiðslna jafnvel lent í hærra skattþrepi en ef lífeyrir væri sóttur eftir starfslok. Þá hefur lífeyristaka samhliða fullri vinnu ólík áhrif á þær deildir sjóðsins sem ræddar voru hér að ofan. Nema tilteknum viðmiðum sé náð er þannig ekki mögulegt að sækja greiðslur úr B deild ef enn er unnið fyrir hið opinbera, nema starfshlutfall sé komið niður fyrir 50%. Sé um jafna ávinnslu réttinda að ræða hægist á ávinnslu um helming ef fullur lífeyrir er tekinn, en ekki ef sótt er um hálfan lífeyri. Þetta er vissulega flókið og það getur verið erfitt að átta sig á réttindaávinnslu lífeyrissjóða en greinargóðar upplýsingar má finna á vef LSR. Aðrar mögulegar leiðir Eins og þú heyrir er ekki hægt að fullyrða að lífeyristaka muni henta þér akkúrat núna, en þú skalt endilega kynna þér þinn lífeyri á vefnum eða með samtali við starfsfólk lífeyrissjóðsins. Ef þörf er á auknum tekjum gæti einnig hentað að sækja viðbótarlífeyrissparnað eða aðrar tegundir séreignar. Þá getur stundum verið áhugaverður kostur að blanda saman hálfum launum, hálfum lífeyrisgreiðslum og hálfum greiðslum frá Tryggingastofnun í leið sem kölluð er hálfur lífeyrir. Hvernig vitum við hvað hentar? Ein algengustu mistökin sem ég sé sjóðfélaga LSR gera eru að herma hver eftir öðrum og það virðist mjög vinsælt. Aðstæður þínar eru ekki endilega þær sömu og aðstæður vinnufélaganna. Vegna ólíkra tegunda lífeyrisréttinda eru réttindin heldur ekki þau sömu. Því getur kaffistofan verið stórhættuleg og þú verður að lofa mér því að kynna þér þín réttindi vel áður en þú tekur ákvörðun um lífeyristöku. Hver veit? Það má vel vera að það komi í ljós að nú sé tilvalinn tími til að sækja um lífeyrisgreiðslur.
Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Eldri borgarar Kjaramál Tengdar fréttir Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? 31 árs karlmaður spyr: „Ég er búinn að vera með óverðtryggt húsnæðislán á breytilegum vöxtum yfir alla þessa vaxta vitleysu seinustu ár. Svo mig langar til þess að forvitnast hvort það sé skynsamlegt fyrir mig að fara yfir í fasta vexti eða ekki? Minnkar eignamyndunin á föstum vöxtum miðað við breytilega vexti? Þetta er lán upp á sirka 41.000.000 kr.“ 8. september 2026 09:34 Af hverju eru allir að eyða svona miklu? 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ 25. ágúst 2026 07:00 Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00 Mest lesið Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Sjá meira
Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? 31 árs karlmaður spyr: „Ég er búinn að vera með óverðtryggt húsnæðislán á breytilegum vöxtum yfir alla þessa vaxta vitleysu seinustu ár. Svo mig langar til þess að forvitnast hvort það sé skynsamlegt fyrir mig að fara yfir í fasta vexti eða ekki? Minnkar eignamyndunin á föstum vöxtum miðað við breytilega vexti? Þetta er lán upp á sirka 41.000.000 kr.“ 8. september 2026 09:34
Af hverju eru allir að eyða svona miklu? 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ 25. ágúst 2026 07:00
Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00