Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 21. október 2026 20:03 Snjólaug Lúðvíksdóttir uppistandari ræddi við blaðamann um grínið, foreldrahlutverkið, skilnað, fjölskylduna og stanslausan húmor fyrir sjálfri sér. Vísir/Anton „Þegar mér líður illa þá grenja ég ótrúlega mikið allan daginn, úti um allt og sérstaklega úti í umferðinni,“ segir uppistandarinn Snjólaug Lúðvíksdóttir, sem kom eins og stormsveipur inn í íslensku grínsenuna fyrir nokkrum árum og gerir óspart grín að sjálfri sér.
Snjólaug er 42 ára, einhleyp og eignaðist sitt fyrsta barn fyrir þremur árum, soninn Kára Hrafn. Hún ólst upp í Noregi og svo Frakklandi en flutti ellefu ára í Hafnarfjörð og segir Ísland hafa hentað henni betur þar sem hún sé brussa og það hafi ekki endilega passað frönskum dömum. Húmorinn er mikið haldreypi í lífi Snjólaugar.Vísir/Anton Síðar lærði Snjólaug handritaskrif í London, bjó í mörg ár í stórborginni með fullt af meðleigjendum og fylgir sínu eigin tempói. Í dag er hún einn vinsælasti grínari landsins, kemur fram víða um land og er meðal þeirra sem skrifa Skaupið í ár. Einhleyp og týnd í stórborginni Hún ræddi við blaðamann um berskjöldun, að hafa stanslausan húmor fyrir sjálfri sér, heilunina sem því fylgir, væntanlegar uppistandssýningar í Bæjarbíói og á Akureyri, upphafið og margt fleira. „Ég byrjaði 29 ára í uppistandinu og það er kannski svolítið seint, mér finnst allavega flestir byrja töluvert fyrr. Þetta byrjaði allt á því að ég fór að gera grín að eigin aðstæðum. Á þessum tíma bjó ég í London og hafði kannski ekki mjög ákveðna hugmynd um það hvað ég ætlaði að gera í framtíðinni. Ég var einhleyp, svolítið týnd og bjó með milljón manns í hálfgerðri kommúnu á meðan mér fannst vinkonur mínar á Íslandi komnar á allt annan stað og meira settlaðar. Þannig að ég gerði svolítið grín að því hvað ég var mikill jólasveinn miðað við þær og fyrstu brandararnir mínir snúast að mestu um það. Þar kviknar löngunin að hella mér í grínið, því það er oft svo mikill sálfræðingur í gríninu,“ segir Snjólaug kímin og bætir við að það hafi verið auðvelt fyrir hana að heillast af þessu. Snjólaug fann strax heilun í uppistandinu.Vísir/Anton „Að fara upp á svið, tala um eitthvað sem þú ert að ganga í gegnum og fá hláturinn til baka þar sem áhorfendur jafnvel skilja og tengja, sú tilfinning er engri lík. Ég nennti ekki til sálfræðings, það var svo dýrt, þannig ég var að vinna mig í gegnum alls konar með því að skrifa fyndna dagbók sem ég las upp fyrir heilan sal. Það er rosaleg heilun og úrvinnsla sem fylgir því.“ Sigraði og lenti svo harkalega á jörðinni Ferill Snjólaugar hófst þegar hún tók ákvörðun um að skrá sig í uppistandskeppni í London. Hún flutti upphaflega út fyrir meistaranám í handritaskrifum og dvölin ílengdist eftir útskriftina. „Þessi lífsstíll úti var mjög frábrugðinn því sem þekktist heima og ég held að mörgum hafi þótt skrítið að heyra frá því sem ég var að gera, í námi sem var kannski ekki mjög skýr framtíð í og að skrá mig í uppistandskeppni,“ segir Snjólaug og skellir upp úr. „En ég undirbjó mig vel og fann strax hvað mér fannst gaman að skoða hvernig væri hægt að nota orðin og talanda, ýkja hluti og tilfinningar og búa til eitthvað fyndið. Þetta var smá brjálæði, að ákveða að taka þátt, en ég kýldi á það og vann keppnina í fyrsta skipti sem ég tók þátt. Auðvitað verð ég þá svolítið góð með mig og held ótrauð áfram að mæta á open mic kvöld í London. Í annað skipti gekk alls ekki jafn vel, þannig ég lenti harkalega á jörðinni,“ segir Snjólaug brosandi en hún missti þó ekki dampinn. Af því það gekk svona svakalega vel í fyrstu tilraun þá vissi ég hvað þetta gat verið skemmtilegt. Það er geggjuð tilfinning sem fylgir því þegar heill salur hlær að þér þegar þú ert að vinna úr krumpum í sálinni. Ef ég hefði klúðrað þessu í fyrstu tilraun þá hefði ég aldrei haldið áfram því það er líka mjög niðurbrjótandi. Þú getur líka ekki kennt neinum um, það er enginn leikstjóri eða utanaðkomandi aðili sem stýrir þessu, þetta er bara allt á þér. Sú tilfinning er hræðileg, þá ferðu bara heim í bólið og grætur í fósturstellingunni.“ Niðurlægjandi hliðar óumflýjanlegar Snjólaug segist þó vera með breiðara bak í dag og sé fljótari að jafna sig. „Stundum er það þannig að fólki finnst ég ekki fyndin og það er bara allt í lagi en yfirleitt er hægt að kenna einhverju um ef það eru takmarkaðar móttökur fyrir uppistandinu. Til dæmis ef maður er á árshátíð og salurinn er þannig uppsettur að fáir sjá mann eða fólk er orðið mjög hresst og er ekki að hlusta. Það getur alveg verið auðvelt að hugga sig við það og þetta fer ekki alveg eins í egóið og það gerði. Ég get ekki enn alveg aðskilið sjálfa mig frá uppistandaranum en veggurinn er þykkari. Í upphafi var þetta bara örþunn slæða, ég var uppistandarinn og grínið var ég. Auðvitað er samt niðurlægjandi að keyra heim frá til dæmis Hveragerði eftir feilað gigg. Sú bílferð getur verið alveg smá tilvistarkrísa bara: Hvað ertu að gera við lífið þitt?“ segir Snjólaug hlæjandi. Tilvistarkrísan er óumflýjanlegur hluti af gigglífinu.Vísir/Anton Hún hefur líka geta leitað í visku annarra reynslubolta hvað þetta varðar. „Uppistandarinn Sarah Millican er með góða reglu. Ef það er gigg um kvöldið gefur hún sér tíma til miðnættis til að vera annaðhvort ógeðslega montin eða ógeðslega leið. Svo um leið og nýr dagur kemur þá er þetta bara búið. Ég reyni að tileinka mér þetta.“ Betra að vera brussa á Íslandi Snjólaug eyddi unglingsárum sínum í Hafnarfirði og kom ellefu ára til landsins ansi veraldarvön. „Ég er skilnaðarbarn og á risastóra flókna fjölskyldu sem ég geri mikið grín að. Þetta er alvöru „modern family“, með stjúpmæður- og feður og mikið fjör. Mamma og pabbi lærðu í Noregi og unnu í Frakklandi þangað til við fluttum heim. Ég var smá eins og fín frönsk dama þegar ég kom inn í kraftgallakúltúrinn hérlendis sem var mjög gaman. Ég passa betur inn í íslenska menningu en franska, ég er rosalega skandinavísk í mér og líka mjög mikil brussa, sem franskar konur eru ekki,“ segir hún kímin. Snjólaug var, þvert á það sem margir myndu hugsa um uppistandara, frekar feimið barn og segist frekar feimin yfir höfuð. „Ég hef aldrei verið mikill trúður þrátt fyrir að hafa alveg verið félagslynd og alltaf átt mikið af vinum. Þegar ég var að byrja og sagði fólki í kringum mig að ég ætlaði að fara út í uppistand var fólk alls ekki sannfært. Ég ber það ekki utan á mér að ég sé ógeðslega fyndin og þetta kemur fólki oft á óvart.“ „Fann mann sem vildi barna mig“ Undanfarið misseri hefur Snjólaug gengið í gegnum miklar breytingar á sínu lífi og alltaf heldur húmorinn áfram að vera henni haldreipi. „Ég var einhleyp þangað til ég varð 39 ára og fann þá mann sem vildi barna mig. Fram að því var ég mikið að miða uppistöndin við það að ég væri einhleyp og hvað mig langaði í barn. Ég var um tíma mikið að skoða sæðisbanka og gerði svolítið grín að því ferli líka. Við barnsfaðir minn erum hætt saman en erum mjög góðir vinir og strákurinn okkar er orðinn þriggja ára. Núna er ég því farin að fjalla svolítið um þetta og öll uppeldisráðin sem ég fæ úr fjölbreyttum áttum, allt frá ömmum og öfum yfir á TikTok. Ég geri líka mikið grín að vinkonuhópnum mínum, við erum búnar að reyna í svona hundrað ár að skipuleggja vinkonuferð til útlanda en endum alltaf á að rífast inni á hópspjalli um hvenær og hvert. Ég er að grínast með alls konar hluti sem ég held að konur og karlar sem dýrka konur tengi við.“ Góð skilnaðarráð frá pabba Ný uppistandssýning Snjólaugar ber heitið Mjög fín bara og segir Snjólaug að það nái ágætlega utan um hennar líðan. „Þetta er titillinn á mínu lífi líka og ég er búin að ná jafnvægi eftir þetta ferðalag. Það var leiðinlegt að við barnsfaðir minn höfum hætt saman og tilhugsunin um að sjá ekki barnið sitt á hverjum degi var mjög erfið, sérstaklega í byrjun en svo lærir maður að lifa með henni.“ Snjólaug fékk góð skilnaðarráð frá fjölskyldumeðlimum sínum.Vísir/Anton Þá var líka gott að eiga góða reynslubolta að. „Það hefur verið mikið um skilnaði í fjölskyldunni og pabbi var sérstaklega mikið til staðar, hann hefur gengið í gegnum þetta nokkrum sinnum og var með góð ráð,“ segir Snjólaug og hlær. Ég tala einmitt um það í nýju uppistandssýningunni hvað ég passa vel inn í fjölskylduna og geri grín að öllum þessum tengslum og sprengjusvæðum sem eru í fjölskyldum.“ „Grenjandi, keyrandi, veipandi“ Þrátt fyrir að vera smá feimin er Snjólaug mjög óhefluð í samskiptum og á auðvelt með að deila persónulegum sögum. „Oft við fyrsta kaffibolla í vinnunni er ég strax búin að segja alltof mikið. Þegar mér líður illa þá grenja ég ótrúlega mikið allan daginn, úti um allt og sérstaklega úti í umferðinni. Fyrstu vikurnar eftir sambandsslitin hefði ég getað skírt uppistandssýninguna Grenjandi, keyrandi, veipandi. Því ég keyrði stanslaust, grenjaði, veipaði og hlustaði viljandi á sorgleg lög sem létu mig gráta meira. Mér finnst konur almennt svo góðar í að ræða hlutina aftur og aftur og svo allt í einu ertu komin yfir þá. Þessi kvennasamstaða er svo stórkostleg, þegar þér líður illa eru svo margar sem grípa þig, deila sambærilegum reynslum og gefa góð ráð. Það er svo geggjað að líða illa í kringum konur.“ Heiður að fá að vera skotspónn Þrátt fyrir að nýta fólkið í kringum sig mikið í uppistönd sín segist Snjólaug aldrei komast í klandur vegna þess. „Ég reyni alltaf að vanda mig og ég ræði aldrei eitthvað sem er mjög viðkvæmt. Svo er fólkið í kringum mig það athyglissjúkt að það móðgast frekar ef ég geri ekki grín að því,“ segir Snjólaug kímin og bætir við: „Þeim finnst held ég smá heiður að fá að vera með í þessu.“ Snjólaug verður með sýningu á laugardaginn í Bæjarbíói.Aðsend Það er nóg á döfinni hjá Snjólaugu en hún er með tvær stórar uppistandssýningar á döfinni, á laugardaginn næstkomandi í Bæjarbíói og 6. nóvember í Múlabergi á Akureyri. „Samhliða uppistandinu er ég í fimmtíu prósent starfi hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu. Ég er líka að skrifa skaupið um þessar mundir og í alls kyns verkefnum, ég skrifaði meðal annars seríuna Ljúfa líf sem er núna í tökum á Tenerife og verður sýnd á Sýn. Þannig að það er nóg um að vera og sjaldan lognmolla,“ segir Snjólaug glöð í bragði að lokum.
Grín og gaman Sýningar á Íslandi Ástin og lífið Uppistand Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira