Fótbolti

Mark Masons Greenwood í Meistara­deildinni dugði ekki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mason Greenwood fagnar marki sínu í Meistaradeildinni í kvöld.
Mason Greenwood fagnar marki sínu í Meistaradeildinni í kvöld. AP/Emrah Gure

Þýska félagið Borussia Dortmund fagnaði sigri í fyrsta leik dagsins í Meistaradeildinni en Fenerbahce missti aftur á móti af sigri undir blálokin.

Tyrkneska félagið Fenerbahce hélt að liðið væri að landa 2-1 heimasigri á tékkneska félaginu Slavia Prag en gestirnir jöfnuðu á lokamínútu leiksins. 

Fenerbahce hefur því enn ekki náð að fagna sigri í fyrstu þremur leikjum sínum í Meistaradeildinni en hefur gert tvö jafntefli.

Dortmund vann 2-1 útisigur á Sabah frá Aserbaísjan og er með tvo sigra í þremur leikjum. Eina tap þýska liðsins var á móti norska félaginu Bodö/Glimt í síðustu viku.

Tyrkirnir byrjuðu vel því þeir skoruðu tvisvar á fyrstu ellefu mínútum leiksins. Fyrra markið skoraði Oğuz Aydın á 4. mínútu en sjö mínútum síðar bætti Mason Greenwood, fyrrum leikmaður Manchester United, við öðru marki.

Nathan Aké, fyrrum leikmaður Manchester City, fór meiddur af velli í liði Fenerbahce á 21. mínútu en sex mínútum áður hafði Lukás Provod minnkað muninn fyrir Slavia Prag. Þannig var staðan þar til á 90. mínútu þegar Pavel Kacor tryggði Tékkunum 2-2 jafntefli.

Serhou Guirassy var maðurinn á bak við sigur Dortmund því hann skoraði tvívegis, kom liðinu í 1-0 á 10. mínútu og skoraði svo sigurmarkið á 53. mínútu eftir að Aden McCarthy hafði jafnað fyrir Sabah með skallamarki undir lok fyrri hálfleiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×