Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Sif Sigmarsdóttir skrifar 22. október 2026 07:01 Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Getty Í síðustu viku hélt hópur fornleifafræðinga til afskekktrar eyjar í Kyrrahafi. Vonuðust þeir til að leysa eina stærstu ráðgátu flugsögunnar: Hvað varð um Ameliu Earhart, sem hvarf sporlaust árið 1937 er hún reyndi að fljúga umhverfis jörðina? Unnendur hulinna leyndardóma þurfa þó ekki að örvænta. Dularfullur hlutur, sem hafði sést á gervihnattarmynd af lóni á eyjunni, reyndist ekki vera flugvél heldur trjábolir.
Á sama tíma og fornleifafræðingar koma að tómum kofanum standa stærðfræðingar frammi fyrir gagnstæðum vanda. Fyrr í mánuðinum birti gervigreindarfyrirtækið OpenAI lausnir á hundruðum áður óleystra stærðfræðivandamála. „Ef gervigreindin er komin svo fram úr okkur að hún bæði býr til niðurstöðurnar og er betri í að túlka þær fyrir okkur þá er nú lítil ástæða fyrir okkur að vera til einhvern veginn,“ sagði Sigurður Freyr Hafstein, prófessor í stærðfræði við Háskóla Íslands, í samtali við RÚV. Þeir sem óttast að allur leyndardómur sé horfinn úr veröldinni þurfa þó ekki að örvænta. Eftirfarandi er ekki aðeins listi yfir sjö af stærstu ráðgátum veraldar heldur einnig staðfesting þess að stöðugt bætast nýjar í hópinn. 1) Hvers vegna dó fólk við að dansa? Árið 1374 breiddist dularfull plága milli bæja Rínardalsins. Á götum úti engdist fólk um í stjórnlausum dansi. Plágan breiddist um Evrópu og heltók heilu landsvæðin uns hún fjaraði út nokkrum mánuðum síðar. Árið 1518 skaut hún aftur upp kollinum þegar kona að nafni „frau“ Troffea hóf að stíga trylltan dans á götu í Strassborg. Dansæði rann á mörg hundruð konur, karla og börn. Borgaryfirvöld gripu til þess ráðs að reisa danspalla og ráða hljóðfæraleikara til að hjálpa fólki að dansa æðið úr sér. Ráðstöfunin gerði aðeins illt verra. Slys urðu á fólki og fjöldi manns lét lífið áður en yfir lauk. Dansplágan er sögð hafa kostað fjölda manns lífið.Getty Samtíðargreinendur kenndu djöflinum, guði og dýrlingum um dansæðið. Síðar skutu upp kollinum kenningar um að sveppur hefði komist í hveiti og valdið ofskynjunum. Sálfræðingar telja nú að um hafi verið að ræða „hópsýking af sálrænum toga“. Enginn veit þó nákvæmlega hvað olli dansæðinu í Evrópu á miðöldum. 2) Hver er höfundur Njálu? Erfitt er að ímynda sér að nokkur komist í gegnum daginn án þess að leiða hugann að þessari helstu ráðgátu bókmenntasögunnar. En þótt spurningunni sé enn ósvarað þarf ekki svo að vera um aldur og ævi. Árið 2023 leystu spænskir vísindamenn með aðstoð gervigreindar aldagamla gátu um höfund dularfulls leikrits sem varðveitt var á Landsbókasafni Spánar. Höfundur þess reyndist stórskáldið Lope de Vega, sem uppi var á 17. öld. 3) Hvað ætlarðu að fá þér í hádegismat? Valdi sú spurning þér hugarangri skaltu varast þessa: Hvað er hulduefni? Talið er að um 85% af öllu efni í alheiminum sé svonefnt hulduefni, efni sem við sjáum ekki og vitum ekki hvað er en mælingar benda til að sé til staðar. Valið milli samloku og súpu virðist allt í einu eitthvað svo léttvægt. 4) Hver er Satoshi Nakamoto? Okkur finnst mörgum veröldin alltaf hafa verið eins og hún er akkúrat núna. Ekki er hins vegar langt síðan nöldurseggir Facebook fundu lífsfyllingu í því að amast við allt annarri tækni en gervigreind. Árið 2008 birtist grein undir dulnefni á internetinu eftir mann sem kallaði sig Satoshi Nakamoto. Greinin varð grundvöllur rafmyntarinnar Bitcoin. Stytta af Satoshi Nakamoto í Búdapest.Getty Tæknin var ekki aðeins vatn á myllu áhættufjárfesta heldur einnig dómsdagsspámanna. Enn veit þó enginn hver Satoshi Nakamoto er í raun og veru. 5) Hvarf í ellefu daga: Hvað gerðist? Í desember næstkomandi er öld liðin frá dularfullu hvarfi rithöfundarins Agöthu Christie. Að kvöldi 3. desember 1926 kyssti Christie dóttur sína góða nótt, settist upp í bifreið og ók á brott. Næsta dag fannst bíll hennar yfirgefinn. Kveikt var á framljósunum. Kápan hennar lá í aftursætinu. Rithöfundurinn, sem þekkt var fyrir ráðgátur sínar, var á bak og burt. Í kjölfarið upphófst umsvifamesta lögregluleit sem gerð hafði verið í Bretlandi; meira en þúsund lögreglumenn kembdu sveitir með aðstoð mörg þúsund sjálfboðaliða. Í ellefu daga voru bresk dagblöð uppfull af fréttum af leitinni að Agöthu Christie. Myndin er af Christie og sjö ára dóttur hennar Rosalind.Getty Ekkert spurðist til Christie fyrr en ellefu dögum síðar þegar hún fannst á hóteli þar sem hún dvaldi undir dulnefni. Dulnefnið var eftirnafn hjákonu eiginmanns hennar. Christie kvaðst ekki muna hvað hafði gerst þá ellefu daga sem hennar var leitað. Hvað olli hvarfinu? Svarið tók Christie með sér í gröfina. 6) Er líf á öðrum hnöttum? Árið 2024 fann könnunarbíll NASA dularfullan stein í uppþornuðum árfarvegi á Mars. Steinninn var þakinn blettum sem minntu á feld hlébarða. Rannsóknir bentu til að þeir gætu hafa myndast við starfsemi örvera fyrir milljörðum ára. Vísindamenn telja fundna eina haldbærustu vísbendingu til þessa um að líf geti hafa þrifist á öðrum hnöttum. 7) Það sem enginn veit Eðlisfræðingar halda því fram að alheimurinn fari stækkandi. Í stöðugt stækkandi veröld skapast æ meira svigrúm fyrir ráðgátur. Sú nýjasta varð til hér á Íslandi í síðustu viku: Hvers vegna sagði Jón Gnarr sig úr þingflokki Viðreisnar? Enginn veit.
Samhengið með Sif Flug Gervigreind Dans Bókmenntir Spánn Matur Vísindi Geimurinn Rafmyntir og sýndareignir Facebook Bretland Mars Viðreisn Úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar Tengdar fréttir Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Í síðustu viku bárust fréttir af því að gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefði fundið lausnir á hundruðum áður óleystra stærðfræðivandamála. Stærðfræðingar súpa hveljur. Hvað eiga þeir nú að aðhafast inni á loftlitlum skrifstofum yfir svörtu kaffi og rúðustrikaðri stílabók? 15. október 2026 07:03 Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Árið er 1973. Matvælaverð í Bandaríkjunum fer óðum hækkandi. Richard Nixon bregst við með ríkisstuðningi við landbúnað. Bændur eru hvattir til að rækta eins mikinn maís og pláss leyfir – eða „frá einni girðingu að þeirri næstu“ eins og landbúnaðarráðherra hans orðar það. Ívilnunin dregur hins vegar dilk á eftir sér. 8. október 2026 07:01 Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Eiginmaður minn fór á pöbbinn nýverið til að horfa á fótboltaleik. Svo að hann sæi á sjónvarpsskjáinn þurfti hann að horfa til hliðar allt kvöldið. Liðið hans vann. Hann hefur hins vegar ekki getað snúið höfðinu fram síðan. 1. október 2026 07:02 Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Mary Maloney beið þess með eftirvæntingu að eiginmaður hennar kæmi heim úr vinnunni. Hún var komin sex mánuði á leið af fyrsta barni og naut þess að stjana við manninn sinn. 24. september 2026 07:03 Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Ég keypti mér nýverið stóran dall af fæðubótarefninu kreatíni – ég hafði heyrt að það væri miðaldra konum allra meina bót. Þegar efnið fór að valda mér óþægindum í maga gerði ég það sem hvaða heilvita manneskja hefði gert: Ég fór aftur í búðina og keypti dall af ennþá dýrara kreatíni. 17. september 2026 07:02 Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Skóli barnanna hófst loks í vikunni hér í London þar sem ég bý. Að vanda kem ég undan sumrinu full af sjálfsfyrirlitningu. Guð hvað börnin mín hljóta að vera fegin að komast í skólann eftir að hafa þurft að þola mig í sjö vikur. 10. september 2026 07:02 Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Margt er hægt að kaupa fyrir peninga: Flottan bíl, nuddpott, þjóðaratkvæðagreiðslu ... Greiðendur húsnæðislána gerðu sér margir vonir um að kaupa eitthvað fínt fyrir peninginn sem yrði afgangs af ráðstöfunartekjunum þegar Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru. Eftir nýliðna þjóðaratkvæðagreiðslu sjá þeir hins vegar fram á að búa við núverandi ofurvexti um aldir alda. 3. september 2026 07:03 Hvað hafa þau að fela? „Helvíti er annað fólk,“ er haft eftir persónu í leikriti franska heimspekingsins Jean-Paul Sartre. 28. maí 2026 07:02 Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. 21. maí 2026 07:02 Bíður þetta böl lands og þjóðar? Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan. 14. maí 2026 07:01 Tapaði ellefu milljónum David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans. 7. maí 2026 07:00 Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. 30. apríl 2026 07:00 Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Þegar ég fullyrti við breskan vin minn að Ísland væri spilltasta ríki Norðurlanda skellihló hann. Honum fannst lítið til áþjánar landsmanna koma og sagði: „Að vera spilltasta ríkið á Norðurlöndum er eins og að vera lauslátasta nunnan í klaustrinu.“ 23. apríl 2026 07:00 Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hverjum þykir sinn fugl fagur. Að sama skapi virðist hverri kynslóð finnast eigin mótunarár hafa verið hápunktur vestrænnar siðmenningar. 16. apríl 2026 07:02 Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur. 9. apríl 2026 07:00 Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft. 2. apríl 2026 07:02 Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma. 26. mars 2026 07:01 Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. 19. mars 2026 07:02 Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira
Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Í síðustu viku bárust fréttir af því að gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefði fundið lausnir á hundruðum áður óleystra stærðfræðivandamála. Stærðfræðingar súpa hveljur. Hvað eiga þeir nú að aðhafast inni á loftlitlum skrifstofum yfir svörtu kaffi og rúðustrikaðri stílabók? 15. október 2026 07:03
Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Árið er 1973. Matvælaverð í Bandaríkjunum fer óðum hækkandi. Richard Nixon bregst við með ríkisstuðningi við landbúnað. Bændur eru hvattir til að rækta eins mikinn maís og pláss leyfir – eða „frá einni girðingu að þeirri næstu“ eins og landbúnaðarráðherra hans orðar það. Ívilnunin dregur hins vegar dilk á eftir sér. 8. október 2026 07:01
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Eiginmaður minn fór á pöbbinn nýverið til að horfa á fótboltaleik. Svo að hann sæi á sjónvarpsskjáinn þurfti hann að horfa til hliðar allt kvöldið. Liðið hans vann. Hann hefur hins vegar ekki getað snúið höfðinu fram síðan. 1. október 2026 07:02
Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Mary Maloney beið þess með eftirvæntingu að eiginmaður hennar kæmi heim úr vinnunni. Hún var komin sex mánuði á leið af fyrsta barni og naut þess að stjana við manninn sinn. 24. september 2026 07:03
Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Ég keypti mér nýverið stóran dall af fæðubótarefninu kreatíni – ég hafði heyrt að það væri miðaldra konum allra meina bót. Þegar efnið fór að valda mér óþægindum í maga gerði ég það sem hvaða heilvita manneskja hefði gert: Ég fór aftur í búðina og keypti dall af ennþá dýrara kreatíni. 17. september 2026 07:02
Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Skóli barnanna hófst loks í vikunni hér í London þar sem ég bý. Að vanda kem ég undan sumrinu full af sjálfsfyrirlitningu. Guð hvað börnin mín hljóta að vera fegin að komast í skólann eftir að hafa þurft að þola mig í sjö vikur. 10. september 2026 07:02
Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Margt er hægt að kaupa fyrir peninga: Flottan bíl, nuddpott, þjóðaratkvæðagreiðslu ... Greiðendur húsnæðislána gerðu sér margir vonir um að kaupa eitthvað fínt fyrir peninginn sem yrði afgangs af ráðstöfunartekjunum þegar Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru. Eftir nýliðna þjóðaratkvæðagreiðslu sjá þeir hins vegar fram á að búa við núverandi ofurvexti um aldir alda. 3. september 2026 07:03
Hvað hafa þau að fela? „Helvíti er annað fólk,“ er haft eftir persónu í leikriti franska heimspekingsins Jean-Paul Sartre. 28. maí 2026 07:02
Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. 21. maí 2026 07:02
Bíður þetta böl lands og þjóðar? Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan. 14. maí 2026 07:01
Tapaði ellefu milljónum David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans. 7. maí 2026 07:00
Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. 30. apríl 2026 07:00
Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Þegar ég fullyrti við breskan vin minn að Ísland væri spilltasta ríki Norðurlanda skellihló hann. Honum fannst lítið til áþjánar landsmanna koma og sagði: „Að vera spilltasta ríkið á Norðurlöndum er eins og að vera lauslátasta nunnan í klaustrinu.“ 23. apríl 2026 07:00
Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hverjum þykir sinn fugl fagur. Að sama skapi virðist hverri kynslóð finnast eigin mótunarár hafa verið hápunktur vestrænnar siðmenningar. 16. apríl 2026 07:02
Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur. 9. apríl 2026 07:00
Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft. 2. apríl 2026 07:02
Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma. 26. mars 2026 07:01
Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. 19. mars 2026 07:02