Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Bjarki Sigurðsson skrifar 23. október 2026 08:17 Tómas G. Guðjónsson er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur segir tilfærslu á ábyrgð heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkis hafa haft mikil áhrif á starfsemina sem ekki sjái fyrir endann á. Allir heilbrigðisfulltrúar landsins eru á uppsagnarfresti.
Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík, hafði í tvo mánuði reynt að fá svör frá heilbrigðiseftirlitinu varðandi rekstrarstaði borgarinnar sem hafa fengið athugasemdir frá eftirlitinu. Fyrirspurnina lagði hún aftur fram á fundi ráðsins í gær og fékk hún þá svar. Í svarinu afsakar Tómas G. Gíslason, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins, mikla töf á svörum. Tafirnar sagði hann stafa af umfangsmiklum skipulagsbreytingum á heilbrigðiseftirliti á landsvísu en um áramótin færast öll verkefni frá sveitarfélögum til ríkisins. Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins hefur verið sagt upp vegna þessa. „Þessi áform hafa haft í för með sér verulegt rask á starfsemi embættisins. Starfsfólki HER ásamt framkvæmdastjóra hefur verið sagt upp störfum og hefur það þegar valdið mikilli röskun á daglegum rekstri sem sér ekki fyrir endann á,“ segir í svarinu. Þá kemur fram að ekki sé hægt að svara fyrirspurn Silju vegna mannaflaþurrðar, uppsagna og aukins álags. Heilbrigðiseftirlitið hafi neyðst til að forgangsraða verkefnum og hefur úrvinnsla samantektarinnar ekki verið í forgangi. Mikil óvissa hefur ríkt hjá þeim sem sinna heilbrigðiseftirliti síðustu mánuði eftir að Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra tilkynntu um breytingarnar í fyrrasumar. Starfsfólki var tilkynnt að það yrði búið að ganga frá endurráðningum þegar því yrði sagt upp hjá sveitarfélögunum en það gekk ekki eftir. Pétur Halldórsson, heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík, sagði í samtali við fréttastofu um síðustu mánaðamót að það hefði verið mikill uggur innan stéttarinnar og gaf í skyn að tilfinning þeirra sem starfa við eftirlitið væri sú að ríkið væri ekki tilbúið að taka við verkefnunum.
Reykjavík Borgarstjórn Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Fleiri fréttir Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Sjá meira