Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Árni Sæberg skrifar 23. október 2026 16:39 Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Fyrirtæki þarf ekki að greiða fyrrverandi starfsmanni fyrir síðasta mánuð þriggja mánaða uppsagnarfrest eftir að framkvæmdastjóri þess rak starfsmanninn eftir að upp úr sauð vegna ágreinings um skattafrádrátt. Starfsmaðurinn hótaði meðal annars að slíta höfuðið af framkvæmdastjóranum.
Í dómi þess efnis, sem kveðinn var upp þann 20. október og birtur í dag, segir að ágreiningur málsins hafi lotið að kröfu starfsmannsins um laun síðasta mánuð hans á uppsagnarfresti hjá fyrirtækinu, eða fyrir ágústmánuð 2025. Óumdeilt sé að starfsmaðurinn, sem hafi hafið störf hjá fyrirtækinu í ágúst 2024, hafi sagt starfi sínu lausu í lok maí 2025 og uppsagnarfrestur verið þrír mánuðir. Starfsmaðurinn hafi unnið á uppsagnarfresti í júní og júlí en óumdeilt sé að hann vann ekki í ágúst 2025 eftir að til orðaskipta milli hans og framkvæmdastjóra fyrirtækisins, kom þann 31. júlí 2025. Á fundi þann dag hafi þeir rætt ágreining vegna skattafrádráttar af launum starfsmannsins og óumdeilt sé að til harðra orðaskipta kom sem leiddi til þess að starfsmaðurinn yfirgaf vinnustaðinn. Mennina tvo greini á hinn bóginn á um ástæður þess að starfsmaðurinn gekk út. Í niðurstöðukafla dómsins segir að framkvæmdastjóranum hafi tekist að sanna að starfsmaðurinn hafi sagst ætla að rífa af yfirmanni sínum höfuðið, eða að minnsta kosti ýjað að því, og þannig haft í frammi hótanir um ofbeldi í hans garð. Þá liggi fyrir að starfsmaðurinn hafi hreytt í yfirmanninn frekari ókvæðisorðum, meðal annars með því að kalla hann „fávita“ og „fat piece of shit“. Sú háttsemi hafi af hálfu starfsmannsins sem starfsmanns fyrirtækisins verið verulega ámælisverð og falið í sér svo gróft brot gegn trúnaðarskyldu samningssambands aðila að réttlætt hafi fyrirvaralausa riftun fyrirtækisins án frekari aðvörunar. Fréttamaðurinn hafi þannig firrt sig rétti til launa síðasta mánuð sinn á uppsagnarfresti.
Dómsmál Kjaramál Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira