Enski boltinn

Æðið vindur upp á sig og Gudjohn­sen-merking ó­keypis

Sindri Sverrisson skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Blackburn.
Andri Lucas Guðjohnsen heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Blackburn. Getty/Lee Parker

Andri Lucas Guðjohnsen hefur farið á kostum með Blackburn á yfirstandandi leiktíð og er næstmarkahæstur allra í ensku B-deildinni í fótbolta. Aðdáendur geta nú fengið treyju merkta honum á sérkjörum hjá félaginu.

Eftir að hafa skorað sjö mörk í 25 leikjum með Blackburn á síðustu leiktíð hefur Andri þegar náð að skora níu mörk í tólf leikjum í haust. Þar af eru átta mörk í ensku B-deildinni og aðeins Will Lankshear hjá Middlesbrough er með fleiri eða ellefu.

Andri hefur sérstaklega verið funheitur í leikjunum eftir landsleikjahléið, eftir að hafa skorað tvö mörk fyrir Ísland, því hann hefur nú skorað tvennu í tveimur leikjum í röð og alls fimm mörk í síðustu fjórum leikjum með Blackburn.

Af því tilefni geta aðdáendur nú fengið að merkja Blackburn-treyjur frítt með nafni og númeri Andra en hann er að sjálfsögðu númer níu.

Blackburn býður stuðningsmönnum að merkja treyjur frítt með nafni og númeri Andra Lucasar Guðjohnsen.roverstore.co.uk

Eftir frammistöðu Andra á laugardaginn, þegar hann skoraði bæði mörkin gegn Hollywood-liði Wrexham í 2-0 sigri, hefur honum verið hrósað í hástert og sagði Tony Mowbray, stjóri Blackburn, í léttum tón:

„Farðu varlega, drengur því annars gætirðu endað í Barcelona eins og pabbi þinn,“ en Eiður Smári, pabbi Andra, lék með Barcelona í þrjú ár á árunum 2006-2009.

Stuðningsmenn Blackburn vonast nú til þess að Andri haldi áfram með sama hætti í erfiðum útileik gegn Swansea næsta laugardag. Swansea er í 2. sæti deildarinnar með 23 stig en Blackburn, sem unnið hefur þrjár af síðustu fjórum leikjum, er í 10. sæti með 18 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×