Enski boltinn

Framherjarnir þurfi að stíga upp

Valur Páll Eiríksson skrifar
Van Dijk segir erfitt fyrir nýja menn að feta í fótspor Mohamed Salah en lítið annað sé í boði.
Van Dijk segir erfitt fyrir nýja menn að feta í fótspor Mohamed Salah en lítið annað sé í boði. Getty

Rándýrir leikmenn Liverpool hafa fótað sig ágætlega í síðustu leikjum en fyrirliðinn Virgil van Dijk kallar eftir meiru. Þeirra bíði það erfiða verkefni að fylla í fótspor Mohamed Salah.

Salah yfirgaf Liverpool í sumar eftir erfiða síðustu leiktíð en hafði árin á undan raðað inn mörkum og bætt fjölmörg met. Hann fór til Trabzonspor í Tyrklandi þar sem hann hefur skorað tíu mörk í tíu leikjum fyrir sitt nýja félag.

Liverpool vann Brighton um helgina þar sem ný framlína liðsins virtist smella ágætlega. Alexander Isak, Florian Wirtz og Bradley Barcola kostuðu félagið samanlagðar 364 milljónir punda en hvorugum þeirra tveggja fyrrnefndu tókst að sýna sig og sanna á fyrstu leiktíð þeirra í fyrra.

Isak skoraði sjötta mark sitt í jafnmörgum deildarleikjum um helgina eftir stoðsendingu frá Barcola sem sjálfur skoraði þrennu í Meistaradeildinni á dögunum. Wirtz hefur þá einnig stigið upp undanfarið.

Virgil van Dijk, fyrirliði liðsins, segir Salah og félaga hans í framlínunni um nokkurra ára skeið, Roberto Firmino og Sadio Mané, hafa gefið tóninn fyrir þær kröfur sem gerðar eru hjá félaginu. Nú sé nýrra manna að slá sama tón.

„Ég held að þetta sé raunveruleikinn. Það sem Mo hefur gert í svo mörg ár sem kantmaður, ég held að enginn geti leikið það eftir,“ segir van Dijk.

„Vonandi gerist það en það sem hann gerði var ótrúlegt. Það sama á við um Sadio [Mane] og Bobby [Roberto Firmino]. Vonandi gerist það aftur og það er það sem við vinnum að, en nú er komið að öðrum og aðrir þurfa að stíga upp,“ segir Hollendingurinn enn fremur.

„Við getum alltaf hugsað að allt hafi verið betra í gamla daga en það er ekki hugarfarið sem á að ríkja hjá félagi eins og Liverpool og mér finnst það aldrei hafa verið þannig. Félagið mun alltaf breyta til á einhverjum tímapunkti og það eru alltaf leikmenn sem munu skína og standa sig fyrir félagið,“

„Það er undir leikmönnunum sem eru hér núna komið að sýna það á þriggja eða fjögurra daga fresti. Hjá félagi eins og Liverpool þarftu að gera það á þriggja eða fjögurra daga fresti. Það er alltaf áskorunin, en það er skemmtileg áskorun. Ég er nokkuð viss um að þetta verði í góðu lagi,“ segir van Dijk.

Liverpool mætir Chelsea í enska deildabikarnum á Anfield annað kvöld í leik sem verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay klukkan 19:50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×