Innlent

Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Landris í Svartsengi heldur áfram.
Landris í Svartsengi heldur áfram. Vísir/Vilhelm

Landris mælist áfram á stöðugum hraða við Svartsengi en jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni er áfram lítil. Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er áfram líklegasta sviðsmyndin. Engin gögn benda til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka.

„Aflögunarmælingar sýna áfram landris við Svartsengi. Líkön sem byggja á mælingunum benda til þess að rúmmálsbreyting undir svæðinu haldi áfram með nokkuð stöðugum hraða,“ segir á vef Veðurstofunnar. 

Landrisið sýni að þrýstingur haldi áfram að byggjast upp á nokkurra kílómetra dýpi undir Svartsengi.

Aukin spenna 

Jarðskjálftavirkni sé enn lítil i kvikuganginum þó hafi nokkur virkni verið vestan Grindavíkur. Þann 14. október mældist stærsti skjálftinn á svæðinu síðan í júní. Var hann 2,5 að stærð. 

„Skjálftavirkni á svæðinu við Víkur er talin tengjast aukinni spennu í jarðskorpunni í nágrenni Grindavíkur vegna landriss við Svartsengi. Þessi aukna spenna veldur aukinni spennulosun og þar með jarðskjálftum.“

Kvikuhlaup gæti leitt til eldgoss

Á meðan landris heldur áfram undir Svartsengi er kvikuhlaup frá kvikusöfnunarsvæðinu áfram líklegasta sviðsmyndin. Slíkt kvikuhlaup gæti leitt til eldgoss.

„Ekki er hægt að segja til um hvenær næsti atburður verður. Eftir því sem lengra líður frá síðasta kvikuhlaupi eykst óvissa um tímasetningu næsta atburðar.“ 

Áfram þurfi að gera ráð fyrir að fyrirvari gæti orðið stuttur, líkt og fyrir fyrri kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni. Hættumat gildir óbreytt til 5. janúar.

Hættumatið byggir á fjölbreyttum mæligögnum sem eru stöðugt uppfærð. Ef breytingar verða á virkni eða ný gögn gefa tilefni til verður hættumatið endurskoðað áður en gildistímanum lýkur.Veðurstofan

Engin gögn bendi til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka. Eldstöðin Reykjanes-Svartsengi er áfram á viðvörunarstigi tvö, eða appelsínugulu.

„Til að hægt sé að fullyrða að eldgosahrinunni sé lokið þurfa mæligögn að sýna skýr merki um minnkandi virkni yfir lengri tíma. Þótt tímabil líði án kvikuhlaupa eða eldgosa getur kvikusöfnun haldið áfram eða hafist á ný eftir hlé. Goshrinur á Reykjanesskaga geta staðið yfir í langan tíma með mislöngum hléum milli atburða. Langt hlé eitt og sér er því ekki vísbending um að virkni sé lokið,“ segir á vef Veðurstofunnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×