Innlent

Engin á­stæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur

Árni Sæberg skrifar
Karlmaðurinn eftir að dómari hafði samþykkt kröfu lögreglu um gæsluvarðhald yfir honum.
Karlmaðurinn eftir að dómari hafði samþykkt kröfu lögreglu um gæsluvarðhald yfir honum. Vísir/Sigurjón

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór ekki fram á áframhaldandi farbann yfir manni sem handtekinn var í tengslum við umfangsmikla rannsókn á meintum fíkniefnabrotum og peningaþvætti. Ekki var talin ástæða til að meina honum að fara af landi brott en hann er búsettur í Portúgal.

Maðurinn var handtekinn í flugstöð Leifs Eiríkssonar þann 4. október og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október daginn eftir. 

Maðurinn var handtekinn þegar hann kom með flugi frá Portúgal, þar sem hann er búsettur. Lögreglan ætlaði að handtaka hann í umfangsmiklum aðgerðum í september en hann var þá ytra. Sautján manns voru handteknir vegna málsins 22. september. Sex þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Öllum sautján hefur síðan verið sleppt úr haldi.

Eftir að gæsluvarðhald mannsins rann út var ekki farið fram á að það yrði framlengt heldur var hann úrskurðaður í farbann til föstudagsins í síðustu viku. E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að ekki hafi verið talin ástæða til að krefjast framlengingar þess.

Rannsókn málsins sé þó enn í fullum gangi og miði vel. Einhverjir þeirra sem handteknir voru séu enn með réttarstöðu sakbornings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×