Menning

Í fyrsta sinn utan Úkraínu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var margt um manninn á Listasafni Íslands í síðustu viku á opnun sýningarinnar Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás.
Það var margt um manninn á Listasafni Íslands í síðustu viku á opnun sýningarinnar Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. Elísa B. Guðmundsdóttir

Það var margt um manninn á Listasafni Íslands í síðustu viku við opnun sýningarinnar Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. Þar eru til sýnis 32 fágætar helgimyndir úr safneign Listasafns Úkraínu í Kænugarði. Verkin eru frá 12. öld fram á öndverða 19. öld og hafa mikið listsögulegt og trúarlegt gildi.

Í fréttatilkynningu segir: 

„Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og er liður í því að standa vörð um menningararf Úkraínu og efla tengsl þjóðanna. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi einstöku listaverk eru sýnd utan heimalandsins og er sýningin afrakstur náins samstarfs Listasafns Úkraínu, Listasafns Íslands og Þjóðminjasafns Íslands.

Sýningin stendur í eitt ár. Að henni lokinni verða helgimyndirnar áfram í varðveislu hér á landi, þar sem öryggi þeirra verður tryggt á meðan stríðið í Úkraínu stendur yfir. Undirbúningur verkefnisins hefur staðið í rúmt ár í samvinnu við utanríkisráðuneytið og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.“

Ríkuleg menningararfleifð úkraínsku þjóðarinnar

Samkvæmt Ingibjörgu Jóhannsdóttur, safnstjóra Listasafns Íslands, er sýningin mikilvægur sýnileiki verðmætrar arfleifðar. 

„Hugmyndin að verkefninu kviknaði út frá þeirri ósk okkar að styðja við kollega okkar í Úkraínu og tryggja um leið að menningararfur landsins sé áfram sýnilegur almenningi og minni á hina ríkulegu menningararfleifð úkraínsku þjóðarinnar.

Við búum við þau forréttindi að lifa í einu friðsælasta landi heims og okkur langaði að rétta starfssystkinum okkar hjálparhönd, en þau hafa unnið við afar erfiðar aðstæður síðustu ár.

Við erum þakklát fyrir að njóta fulls stuðnings stjórnvalda og Þjóðminjasafns Íslands undir stjórn Hörpu Þórsdóttur þjóðminjavarðar,“ segir Ingibjörg. 

Verkin erlendis í fyrsta sinn

Sýningarstjóri er dr. Oleksandra Shevliuga, sérfræðingur í úkraínskri listasögu og flestar myndanna koma úr kirkjum þar sem þær prýddu helgimyndaþilið (íkonóstasis) framan við altarið. 

Þær bera vitni um sögu og samfélagsbreytingar í aldanna rás og um ríka hefð úkraínskrar textíl- og skreytilistar.

„Þetta er í fyrsta sinn í sögu safnsins sem þessi verk eru sýnd erlendis og nær allar myndirnar eru nú í fyrsta sinn utan Úkraínu,“ segir Yulia Lytvynets, safnstjóri Listasafns Úkraínu, og bætir við:

„Verkin voru hluti af fastasýningu safnsins sem tekin var niður árið 2022. Þau eru meðal fremstu verka úkraínskrar listar, allt frá miðaldamyndum eftir ónafngreinda meistara til glæsilegra barokkverka. 

Hver mynd segir ekki aðeins sögu úkraínskrar helgimyndalistar heldur einnig sögu úkraínska ríkisins og safnsins okkar. Á þessum erfiðu tímum hafa kollegar okkar rétt okkur hjálparhönd, bæði við að vernda dýrmætustu menningarverðmæti okkar og við að kynna list úkraínsku þjóðarinnar. 

Við erum ríkisstjórn Íslands, Listasafni Íslands og Þjóðminjasafni Íslands óendanlega þakklát fyrir að standa vörð um þjóðararf Úkraínu.“

Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni: 

Linda Salbjörg Guðmundsdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir
Katerina Spathi og Sunna Dagsdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir
Sigríður Dóra Jóhannsdóttir og Claus Sterneck.Elísa B. Guðmundsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, opnaði sýninguna.Elísa B. Guðmundsdóttir
Jo Pawłowskx.Elísa B. Guðmundsdóttir
Listamaðurinn James Merry.Elísa B. Guðmundsdóttir
Ingibjörg Jóhannsdóttir safnstjóri Listasafns Íslands, Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður og Yuliya Lytvynets Forstöðumaður Þjóðarlistasafns Ukraínu.Elísa B. Guðmundsdóttir
Einar Falur Ingólfsson og Ingibjörg Jóhannsdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir
Knús!Elísa B. Guðmundsdóttir
Gestir fylgdust grant með á opnun.Elísa B. Guðmundsdóttir
Flestar myndanna koma úr kirkjum í Úkraínu.Elísa B. Guðmundsdóttir
Logi Leó Gunnarsson ferskur.Elísa B. Guðmundsdóttir
Gestir grandskoða verkin.Elísa B. Guðmundsdóttir
Gestir skáluðu og skoðuðu.Elísa B. Guðmundsdóttir
Oleksandra Shevliuga, sýningarstjóri sýningarinnar.Elísa B. Guðmundsdóttir
Mynd af myndum.Elísa B. Guðmundsdóttir
Yuliya Lytvynets Forstöðumaður Þjóðaristasafns Ukraínu hélt ræðu við opnunina.Elísa B. Guðmundsdóttir
Lófaklapp við opnun.Elísa B. Guðmundsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.