Lífið

Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gulli fékk að fylgjast vel með framkvæmdunum úti á Granda.
Gulli fékk að fylgjast vel með framkvæmdunum úti á Granda.

Matreiðslumeistarinn Axel Óskarsson ákvað á síðasta ári að taka Kaffivagninn fræga úti á Granda í gegn. Verkefnið átti að taka fjórar vikur en fjallað var um það í fyrsta þætti af nýrri þáttaröð af Gulla Byggi í umsjón Gunnlaugs Helgasonar.

Kaffivagninn hefur staðið við Grandagarð frá árinu 1960 en kaffihúsið var upphaflega stofnað árið 1935 en þá á öðrum stað.

Framkvæmdir hófust 4. apríl árið 2025. Í raun þurfti að gera húsið fokhelt og einnig að lagfæra útveggi og fleira. Verkefnið varð mun flóknara en upphaflega stóð til og lauk því 15. ágúst sama ár. En útkoman var frábær eins og sjá má hér að neðan. Þar má einnig sjá þegar Axel kennir Gulla að matreiða hina fullkomnu bernaise-sósu. Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni á Sýn+.

Klippa: Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda

Uppskrift Axels er svona:

Bernaise-sósa fyrir 4 með ábót

4 eggjarauður

400 g smjör

1,5 msk. bernaise essence

1,5 tsk. estragon

Smá vatn ef sósan verður of þykk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.